Þvoið ykkur um hendurnar: fársjúkt ungabarn!

Ónefndur faðir í Tennessee í Bandaríkjunum, birti myndir og frásögn á Imgur sem hefur vakið athygli margra á veraldarvefnum síðustu daga. Þar minnir hann fólk á að þvo sér um hendurnar, áður en það snertir ungabörn, enda full ástæða til!

Í hans tilfelli, sýktist dóttir hans af RSV vírusnum. Sá vírus er kvefveira, sem leggst á bæði efri og neðri öndunarvegi. Á vefsíðu Landlæknis segir að RSV vírusinn sé algengur sjúkdómur sem leggst á alla aldurshópa og getur lagst þungt á fyrirbura og ung börn innan sex mánaða. Veiran smitast á milli yfir vetrarmánuðina.

Í tilfelli barnsins í Tennesse, er um stúlkubarn að ræða, sem var svo hætt komin að hún var nær dauða en lífi síðastliðinn mánudag. Pabbinn skrifar á Imgur:

,,Við misstum hana næstum því á mánudag. Þá sagði starfsfólkið á sjúkrahúsinu við okkur að ef staðan myndi versna, væri lítið hægt að gera meira fyrir hana. Hún var flutt til á sjúkrahúsinu en þegar það átti að flytja hana, leið hún út af. Hún var strax sett í öndunarvél og síðan þá hefur hún verið greind með meira en RS vírusinn því hún er komin með lungnabólgu, flensu, bronkítis og hluti af lunga hennar féll saman.”

En hvers vegna er pabbinn að biðja fólk um að þvo sér um hendurnar?

Jú, á vefsíðu Landlæknisembættisins segir að smitleiðir veirunnar séu einkum með beinni snertingu, auk hósta eða hnerra. Veiran getur lifað í nokkrar klukkustundir á leikföngum eða á borðplötu og getur smitast þannig líka. Smitið fer í gegnum nef, munn og augu.

Á vefsíðunni Scarymommy segir að langbesta leiðin til að koma í veg fyrir sýkingu, sé að þvo sér vel um hendur. Sýkingin getur lagst hvað verst á ungabörn og fyrirbura og eins og þetta dæmi sýnir, geta alvarlegustu tilfellin verið ungabörnum lífshættuleg.

En þetta eru augljóslega skilaboð sem deila má á milli okkar allra og það er það sem pabbinn biður fólk um að gera:

DEILA SKILABOÐUNUM og biðja fólk um að ÞVO SÉR UM HENDUR ef það er nálægt ungabörnum.

Á Imgur segir hann:

,,RSV er ekkert grín. Ég vissi ekki mikið um þennan vírus fyrr en fyrir viku síðan og það vegna þess að þá var vírusinn nálægt því að taka dóttur mína frá mér. Þannig að í guðs bænum viljið þið þvo hendurnar ykkar vel, þegar þið eruð með lítil börn hjá ykkur eða nálægt.\"

Þess má geta í lokin að litla stúlkan hans er úr hættu en fær enn súrefni og er á sjúkrahúsi.

\"\"

Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!