,,þú mátt setjast hjá mér\" - vinsamlega deilið

Ég er að hafa áhyggjur af Sam. Hún er 9 ára. Hress og skemmtileg stelpa. En þessa dagana er hún leið. Kom heim úr skólanum í dag með tárin í augunum. Kvíður fyrir skólanum á morgun. Einhverra hluta vegna, eru stelpurnar í skólanum nefnilega búnar að ákveða að árið 2016, er greinilega tími þar sem Sam fær ekki að vera með. Hún situr því ein í hádegismat. Og er ein í frímínútum.

Að Sam kvíði fyrir næsta skóladag er of vægt til orða tekið.

En í rauninni er Sam ekki ein. Þúsundir barna um allan heim, eru í nákvæmlega sömu stöðu og hún. Eru kvíðin. Líður eins og þau muni ekki lifa af næsta skóladag.

Skólinn í janúar ætti samt að vera nokkuð skemmtilegur tími. Það eru allir með eitthvað nýtt frá jólunum. Ef ekki einhver flík, þá kannski nýir skór eða bakpoki. Eitthvað til að segja frá. En þannig er það ekki hjá öllum. Þess vegna sitja þúsundir barna heima á sunnudegi og kvíða fyrir því að skólavikan hefst á morgun.

Sum þeirra eru kannski nýir nemendur. Þau eru með hnút í maganum yfir því að eignast ekki nýja vini. Eða hnút í maganum vegna eineltis sem þau hafa lent í og eru hrædd um að endurtaki sig. Kannski eru þau með hnút í maganum yfir einhverju allt öðru. Heimilisaðstæðum? Veikum fjölskyldumeðlimi?

\"\"

Í raun skiptir ástæðan ekki öllu máli. Aðalmálið er að það er áhyggjuefni ef mörg börn eru að upplifa kvíða vegna skólans. Ég trúi því nefnilega að í hverjum skóla þurfi enginn nemandi að vera einn. Þar eru alltaf einhverjir aðrir nemendur sem gætu alveg verið með þeim. Þetta eru þá nemendur sem væru alveg til í það, en gera sér bara ekki grein fyrir því hvernig samnemendum þeirra líður.

Mér datt því í hug að segja ykkur frá gula armbandinu. Á því stendur ,,Þú getur setið hjá mér” (e. ,,You can sit with me”). Ég held að svona armband gæti breytt miklu. Dregið úr einelti en þess í stað hvatt til vinskapar og umhyggju. Viðhorfið þyrfti þá að vera það að sá sem er með armbandið, er reiðubúinn til að taka á móti þeim nemanda sem kemur og sest hjá þeim. Án orða.

\"\"

Sá sem á hugmyndina að gula armbandinu heitir Whitehouse og hefur unnið með börnum á ólíkum stöðum eins og í Eþíópíu, Hong Kong og Ástralíu. Hann segir: ,,Armbandið er mjög sýnilegt og stendur fyrir það að hver svo sem er einn, getur nálgast nemendur með armband og sest við hlið þeirra ef svo ber undir. Við erum sannfærð um að armbandið geti dregið úr kvíða nemenda, þunglyndi og einmanaleika, á sama tíma og það styrkir og styður jákvætt félagslíf innan skólans.”

Ókei, en hvað nú?

Mér datt aðallega í hug að við myndum reyna að deila þessari hugmynd sem víðast. Reyna að koma þessari hugmynd um gula armbandið á fleiri staði. Ef gula armbandið er tekið upp í skólum barna okkar, þá ræðum við um það við börnin okkar og reynum þannig að tryggja að armbandið nái markmiði sínu. Eða bara að hvetja börnin okkar til að verða þeir leiðtogar að bjóða öðrum að sitja hjá sér:

,,Þú mátt setjast hérna ef þú vilt?” er setning sem við þurfum að kenna börnunum okkar.

Vinsamlegast deilið.

Byggt á pistli Rebeccu Sparrow á vefsíðunni mamamia.com.

\"\"

Við mælum með á Hringbraut:

Fylgstu með fjölbreyttri dagskrá Hringbrautar: Kíkt í skúrinn, Besti maturinn með Völu Matt, Kvikan með Birni Þorlákssyni, Ólafarnir, Mannamál með Sigmundi Erni, Ég bara spyr, Heilsuráð Lukku, Eywitness, Lífið með Lóu, Afsal, Okkar fólk með Helga Pétursyni, Lög og réttur, Herrahornið og fleira. Og mundu að Hringbraut er ókeypis!

\"\"

Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!