Þetta fannst í nefinu á henni!!! (og var þar í 6 mánuði)

Tja...., það má heldur betur segja að dularfulla nefvandamálið sé leyst hjá litlu hnátunni henni Khloe Russell, sem býr í Kaliforníu. Hún er 5 ára gömul og síðasta hálfa árið, hefur hún verið með stíflað nef.

Mjög stíflað nef.

Foreldrarnir höfðu bæði farið í apótek og keypt meðöl til að losa um, en einnig farið með stúlkuna til læknis. Það furðulega var samt að ekkert virkaði: Alltaf var stúlkan jafn stífluð!

Sem betur fer, kom þó í ljós á dögunum, hver orsökin var.

Næla var föst í nösinni á henni. Nokkuð stór fyrir lítið nef eins og þið sjáið. Sú litla kannaðist reyndar við næluna þegar hún sá hana. Hún sagðist bara hafa gleymt að segja mömmu frá....

\"\"

Newser

Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!