Þetta er ekki ,,fyrir\" eða ,,eftir\" mynd, þetta er líkaminn minn

Þegar Molly Galbraith vaknaði á nýársdag, áttaði hún sig á nokkru merkilegu: Í fyrsta sinn í mörg ár, var hún ekki með einhver markmið um að ,,breyta” líkama sínum. Í gegnum árin hefur það nefnilega alltaf verið eitthvað sem þarf að ,,bæta.” Stundum kílóin, stundum hreysti og vöðvar. Eitthvað....
 
Molly er ein stofnanda Girls Gone Strong, sem er heilsuþjálfun á netinu. Heilsuþjálfunin er rekin af konum og ætluð konum. Í Girls Gone Strong, telja um 59 þúsund meðlimir.
 
En þegar Molly hafði áttað sig á því, að þennan nýársmorgun var hún ekki bara afslöppuð og sæl með sjálfan sig, heldur laus við alla innri togstreitu um að nú þyrfti hún að bæta ,,eitthvað,” ákvað hún að senda félagskonum sínum smá hvatningu á Facebook.
 
\"\"Þar birti hún mynd af sjálfri sér á bikiníi og sagði:
 
,,Þetta er ekki mynd sem er tekin ,,fyrir.” Þetta er heldur ekki mynd sem er tekin ,,eftir.” Það vill nefnilega svo til, að þetta er bara mynd af líkamanum mínum, eins og hann er.
 
Þessi líkami elskar prótein og grænmeti og osta og ís.
 
Þetta er líkami sem elskar að lyfta lóðum, gera armbeygjur og sofa.
 
Þessi líkami hefur verið kallaður:
Of feitur
Of mjór
Of vöðvaður
Of sterkur
Ekki nógu sterkur
Of stór

....allt á sömu vikunni.\"
 
Með færslunni, sagðist Molly hafa viljað hvetja konur til að láta ekki undan þrýsting um hina ,,ímynduðu” fegurð, sem gengur öll út á það að segja konum að vera svona eða hinsegin. Þær eigi nefnilega bara að vera ánægðar með sig eins og þær eru og hugsa útfrá sjálfum sér. Svo vel tóku konur í þessi orð Mollyar, að á Huffingtonpost segir að á annað hundrað þúsund manns, hafi líkað við færsluna á aðeins örfáum dögum.
 
,,....heimurinn er alltaf að rífa niður konur, með skilaboðum um að þær eigi ekki að vera ánægðar með sig...”
 
Heyr, heyr segir Zetan....

Við mælum með á Hringbraut:

Fylgstu með fjölbreyttri dagskrá Hringbrautar allar helgar. Kíkt í skúrinn, Besti maturinn með Völu Matt, Kvikan með Birni Þorlákssyni, Ólafarnir, Mannamál með Sigmundi Erni, Ég bara spyr, Heilsuráð Lukku, Eywitness, Lífið með Lóu, Afsal, Okkar fólk með Helga Pétursyni, Lög og réttur, Herrahornið og fleira. Og mundu að Hringbraut er ókeypis!

\"\"

Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!