Þessi bolur er tær snilld fyrir ferðamenn!!!

Zetan rakst á bol sem verður að teljast tær snilld fyrir ferðamenn. Skiptir þá engu máli hvort það væru erlendir ferðamenn að koma til Íslands eða við sjálf að ferðast um heiminn. Miðað við mismunandi tungumálakunnáttu fólks, er alla vega hægt að segja að bolurinn leysir mörg mál fyrir þá, sem mögulega rekast á einhver vandkvæði vegna tungumálaörðugleika á ferðalögum sínum. Snilldin felst ekkert síður í því að hún leysir líka mál þeirra sem þú hittir á ferðalögunum, því þótt margir geti bjargað sér á til dæmis ensku, getur enskukunnátta innfæddra oft verið ábótavant og þá eru góð ráð dýr.

En bolurinn ,,IconSpeak” er málið. Á honum geta ferðamenn bent á tákn fyrir nánast öllu því sem upp getur komið á ferðalögum. Hvort sem það er að spyrja til vegar, spyrja hvað klukkan sé, athuga með klósett eða hvaða aðra þjónustu, þú bendir bara á táknið á bolnum.

\"\" 

Hugmyndin að bolnum fæddist reyndar á fylleríi. Það voru félagarnir George, Steven og Florian sem bjuggu hann fyrst til. Þeir búa í Sviss en höfðu lent í ógöngum á mótorhjólaferðarlagi í Víetnam. Ekki hjálpuðu tungumálaörðugleikar þeirra og innfæddra fyrir. Kvöld eitt sátu þeir saman og fengu sér í glas. Þar rifjuðu þeir upp ferðasögurnar og fóru að tala um í hvaða veseni ferðamenn geta lent í. Eftir þó nokkuð marga drykki fæddist síðan hugmyndin að ,,IconSpeak” bolnum, sem þeir létu prenta. Fleiri hafa síðan fylgt í kjölfarið og nú er hægt að kaupa bolina á til dæmis Amazon.com, þar sem þeir kosta um 20-25 dollara.

\"\"

\"\"

\"\"

Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!