Þekktir einstaklingar: vissuð þið að þau eru tvíburar?

Við höldum oft að við vitum nánast ,,allt” um fræga fólkið en það er þó fjarri lagi. Til dæmis eru mun fleiri þekktir einstaklingar tvíburar en fólk gerir sér grein fyrir og Zetan tók saman 8 dæmi um þekkta einstaklinga, sem margir vita ekki að eiga tvíbura.

Eða vissir þú þetta?

1. Ashton og Michael Kutcher

Tvíburabróðir Ashton Kutcher heitir Michael og hefur verið hjartveikur allt sitt líf. Ashton hefur sjálfur sagt að hann hafi oftar en einu sinni hugleitt að reyna að bjarga bróður sínum, með því að gefa honum hjartað sitt. Þegar bræðurnir voru 13 ára, var Michael hins vegar svo heppin að fá hjartaígræðslu sem bjargaði lífi hans.

\"\"

2. Kiefer og Rachel Sutherland

Kiefer Sutherland fylgdi í fótspor föður sins og gerðist leikari. Hins vegar þekkja fáir tvíburasystur Kiefer, Rachel. Hún er þó ekki langt undan, því í gegnum árin hefur hún unnið að framleiðslu kvikmynda- og sjónvarpsþátta, sem þýðir að hún er þá við vinnu hinum megin við myndavélina.

\"\"

3. Eva og Joy Green

Eva Green þekkjum við til dæmis úr James Bond myndinni Casino. Tvíburasystir Evu heitir Joy og þær virðast ólíkar í útliti. En Eva hefur litað á sér hárið svart og eflaust er það það og kvikmyndaförðunin, sem gerir þær ólíkari í útliti en þær eru í raun.

 \"\"

4. Isabella og Isotta Rossellini

Isabella Rossellini fylgdi í fótspor móður sinnar Ingrid Bergman og lagði fyrir sig leiklist. Hins vegar vita færri að Isabella á tvíburasystir sem heitir Isotta en hún hefur meðal annars verið lector við virta háskóla eins og Columbia og Harvard.

 \"\"

5. Linda og Leslie Hamilton

Reyndar hafa margir séð tvíburasystur Lindu, sem heitir Leslie, en bara vita ekki af því. Það er vegna þess að sú síðarnefnda, kom fram í atriði í kvikmyndinni Terminator 2, þar sem hún lék ,,plat-Söruh” í myndinni, en þar þótti það sterkur leikur að fá tvíburasysturina frekar en að Linda léki þann karakter sjálf.

\"\"

6. Scarlett og Hunter Johansson

Tvíburabróðir Scarlett Johansson heitir Hunter og er fjarri öllu glys og glamri í Hollywood, en hefur lagt fyrir sig stjórnmál. Hann hefur til dæmis skapað sér nafn sem öflugur kosningastjóri víða.

\"\"

7. Vin Diesel og Paul Vincent

Lengi vel vissi enginn hvernig tvíburabróðir Vin Diesel, Paul, lítur út því hann heldur sig mjög fjarri sviðsljósinu. Þegar leikarar Fast and the Furious komu saman til að minnast Paul Walker, mætti Paul hins vegar með Vin Diesel. Vin Diesel birti síðan mynd af Paul Walker með Paul bróður sínum á Facebook og sagði ,,Þetta eru mínir tveir Paular.”

\"\"

8. Joseph and Jacob Fiennes

Joseph Fiennes er í sviðsljósinu þessa dagana, því hann á að leika poppgoðið Michael Jackson í mynd sem nú á að fara að framleiða og ekki allir eru sáttir um. Tvíburabróðir hans heitir Jacob og er mjög fjarri heimi leiklistar og kvikmynda, því hann starfar sem bústjóri úti á landi í Englandi.

\"\"

Hd.Scribol

Við mælum með á Hringbraut:

Fylgstu með fjölbreyttri dagskrá Hringbrautar: Kíkt í skúrinn, Besti maturinn með Völu Matt, Kvikan með Birni Þorlákssyni, Ólafarnir, Mannamál með Sigmundi Erni, Ég bara spyr, Heilsuráð Lukku, Eywitness, Lífið með Lóu, Afsal, Okkar fólk með Helga Pétursyni, Lög og réttur, Herrahornið og fleira. Og mundu að Hringbraut er ókeypis!

\"\"

Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!