Þekkir þú einhvern sem er siðblindur? 6 helstu einkennin

Sækópatía (psychopathy), sem ýmist er kölluð siðblinda eða geðvilla á íslensku er talin hrjá um 1% mannkyns samkvæmt rannsóknum sálfræðingsins Robert D. Hare. Robert hefur varið stórum hluta starfsævi sinnar í rannsóknir á siðblindu. Um hana hefur hann skrifað fjölda greina og bóka. En frægust bóka hans er líklega Without Conscience: The Disturbing World of the Psychopaths Among Us.

Það er mjög erfitt að átta sig á því hver er siðblindur og því ber að taka svona gátlista með fyrirvara. En aðal ástæðan fyrir því að siðblindir bera ekki sjúkdóminn utan á sér er sú að þeir eru yfirleitt mjög heillandi og þægilegir við fyrstu kynni.

Siðblindir eru meistarar í að koma „eðlilega“ fyrir. Samt eru nokkur hættumerki sem hægt er að hafa í huga til að átta sig á siðblindu eðli. Þessi eru helst: 

\"\"1. Viðkomandi reynir við fyrstu kynni að sannfæra þig um hversu mikla yfirburði hann hefur fram yfir þig. Hann gæti gert þetta með því að hampa menntun sinni, launum, hlutverki eða verkefnum sem hann heldur því fram að hann hafi á sinni könnu.

2. Sjúkleg lygaárátta (mytomani) fylgir siðblindu. Vertu á varðbergi gegn því að hann sé tvísaga. Ef eitthvað hljómar of ótrúlega til að vera satt er raunin oft sú.

\"\"3. Kalt, tómt og starandi augnaráð er varúðarmerki. Augnaráði siðblinds manns er oft lýst sem meira starandi en venjulegs fólks. Sá siðblindi starir óafvitandi á allt umhverfis sig.

4. Dulbúnar eða beinar hótanir: Siðblindur notar oft einhvers konar hótanir til að fá vilja sínum framgengt. Hótunin virkar oft \"\"sakleysisleg, t.d. „ef við gerum ekki þetta þá mun þetta gerast“.

5. Siðblindur einstaklingur hefur oft ákaflega háar hugmyndir um sjálfan sig. Þegar hann rekur þætti úr ævi sinni kemur bólgið sjálfsálitið í ljós.

\"\"6. Siðblindur einstaklingur kemur misjafnlega fram við annað fólk eftir því hvaða hlutverki hann gegnir í samfélaginu. T.d. veður hann yfir undirmenn og smjaðrar fyrir yfirmönnum.

 

\"\"

Birt á Spyr.is 14.apríl 2014

Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!