Þegar hún fæddist, földu læknarnir andlit hennar....

Fyrir rúmum 20 árum síðan, störfuðu hjónin Roger og Tina Thomas sem sjálfboðaliðar á sjúkrahúsi í Hong Kong. Einn daginn var komið með ungabarn á sjúkrahúsið. Og það skilið eftir.

Barnið var stúlka, með sjaldgæfan húðsjúkdóm sem heitir ,,Harlequin Ichtyosis.” Sjúkdómurinn hefur mikil áhrif á ytra útlit, en að öðru leyti, var stúlkan heilsuhraust.

Læknarnir huldu andlit hennar þegar hún fæddist.

Og foreldrarnir treystu sér ekki til þess að ala hana upp.

En Roger og Tina sáu ekkert nema fallega litla stúlku. Þau tóku hana því að sér og ættleiddu.

\"\" 

Í dag er litla stúlkan orðin 22 ára. Hún heitir Mui og starfar í dag við að aðstoða fólk með sérþarfir.

\"\" 

Mui er vinamörg og stundar íþróttir í frístundum sínum.

 \"\"

\"\"

En það er ekki allt.....

Mui hefur vakið athygli og aðdáun um allan heim, því hún talar fyrir því sem hún kallar ,,visible difference,” eða öðruvísi útliti. Hún segir útlitið ekkert segja um sinn innri mann og það eigi við um alla, sem líta eitthvað öðruvísi út en flest annað fólk.

\"\"

Þannig hefur Mui komið fram í viðtölum hjá stórum miðlum eins og CNN og í fyrra, var hún ein þeirra sem talaði á TEDx ráðstefnu í Hong Kong. Við látum ræðuna hennar fylgja hérmeð, en ræðuna hélt hún með foreldrum sínum: Roger og Tinu.

Við mælum með á Hringbraut:

Fylgstu með fjölbreyttri dagskrá Hringbrautar: Kíkt í skúrinn, Besti maturinn með Völu Matt, Kvikan með Birni Þorlákssyni, Ólafarnir, Mannamál með Sigmundi Erni, Ég bara spyr, Heilsuráð Lukku, Eywitness, Lífið með Lóu, Afsal, Okkar fólk með Helga Pétursyni, Lög og réttur, Herrahornið og fleira. Og mundu að Hringbraut er ókeypis!

\"\"

Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!