Þau giftu sig árið 2015: upprifjun og myndir

Það verður spennandi að fylgjast með hvaða leikarar fara í hnapphelduna árið 2016, en Zetan ákvað að rifja upp nokkur brúðkaup frá árinu í fyrra. Þar má nefna brúðkaup Jennifer Aniston sem margir höfðu beðið eftir lengi og enn eitt brúðkaup Billy Joel, sem bæði gifti sig og eignaðist með brúður sinni barn á árinu sem var að líða. Við skulum renna yfir smá lista og rifja upp brúðkaupsfréttir frá árinu 2015.

 

Jennifer Aniston og Justin Theroux

Jennifer og Justin giftu sig þann 5.ágúst síðastliðinn. Veislan var haldin á heimili þeirra í Bel-Air í Kaliforníu og voru gestir meðal annars Howard Stern, Ellen DeGeneres, Courteney Cox, Tobey Maguire, Orlando Bloom og fleiri. Parið hafði verið trúlofað í þrjú ár, en þau kynntust í tökum á myndinni Tropic Thunder árið 2008. Það var þáttastjórnandinn Jimmy Kimmel sem gaf parið saman.

\"\" 

Cameron Diaz og Benji Madden

Diaz og Madden giftu sig á heimili sínu í Beverly Hills þann 5.janúar 2015. Meðal gesta voru Reese Witherspoon, Gwyneth Paltrow, Nicole Richie, Drew Barrymore (sem var reyndar brúðarmeyja) og fleiri. Parið trúlofaði sig aðeins nokkrum vikum fyrr, eða fyrir jólin 2014 og héldu trúlofuninni leyndri. Þegar veislan var síðan haldin, sögðu þau að Cameron væri að bjóða vinum í Golden Globe partý.

\"\" 

Benedict Cumberbatch og Sophie Hunter

Cumberbatch giftist sinni heittelskuðu þann 14.febrúar. Cumberbatch og Hunter giftu sig í kirkju sem var byggð á tólftu öld og var athöfnin og veislan öll hin virðulegasta. Parið eignaðist síðan son í júní síðastliðnum.

\"\"

Johnny Depp og Amber Heard

Johnny Depp og Amber Heard héldu athöfn á heimili Depp í Los Angeles, en einnig á einkaeyju á Bahamas. Þau giftu sig þann 3.febrúar og meðal gesta var 12 ára sonur Depp, auk annarra vina og vandamanna. Þegar athöfninni var lokið á Bahamas, fóru allir gestir í tæran sjóinn að kafa.

\"\"

Ashton Kutcher og Mila Kunis

Parið gifti sig í Kaliforníu á þjóðhátíðardegi Bandaríkjanna, þann 4.júlí en sumir vilja reyndar meina að það hafi jafnvel verið aðeins fyrr. Meðal gesta var dóttir þeirra, Wyatt, John Cryer og fleiri. Kutcher og Kunis lögðu áherslu á að gefa sem minnst upp um athöfn eða veislu.

\"\"

Billy Joel og Alexis Roderick

Söngvarinn er langt frá því að vera dauður úr öllum æðum því 66 ára gamall, gekk hann upp að altarinu með hinni 33 ára gömlu unnust sinni, Alexis. Parið gifti sig einnig á þjóðhátíðardaginn 4.júlí og var athöfn og veisla haldin á fasteign Billy Joel á Long Island. Meðal gesta voru borgarstjóri New York, Alexa Ray (dóttir Joel) og fleiri. Í veislunni var boðið upp á heilmikla sjávarveislu, s.s. humar, ostrur, túnfisk, rækjur og fleira. Parið eignaðist síðan sitt fyrsta barn í ágúst.

\"\"

Amy Adams og Darren Le Gallo

Leikkonan Amy Adams hitti sinn heittelskaða í leiklistarnámi. Það var árið 2001 en þau trúlofuðu sig árið 2008. Árið 2010 eignuðust þau dóttur en þann 2.maí árið 2015, giftu þau sig í húsi vina og fóru mjög leynt með.

\"\" 

Zooey Deschanel og Jacob Pechenik

Þann 21.júní árið 2015, giftu Zooey og Pechenik sig og þrátt fyrir margar tilraunir slúðurblaðanna til að fá að fylgjast með, tókst parinu að halda athöfn og veislu með mikilli leynd. Þó er vitað að parið gifti sig í Austin í Texas en fréttin sjálf varð ekki opinber fyrr en parið tilkynnti um fæðingu frumburðs þeirra í ágúst.

 \"\"

 

Victor Garber og Rainer Andreesen

Þeir hafa verið saman í 16 ár en fæstir vissu af því þegar þeir gengu í hnapphelduna í byrjun október á síðasta ári. Þann 10.október birtu þeir síðan þessa mynd af sér á Instagram og sögðu ,,Við létum verða af því!” Athöfnin var haldin í Toronto í Kanada en gestalistinn var ekki opinberaður.

\"\"

Sofia Vergara og Joe Manganiello

Sofia Vergara brást ekki aðdáendum sínum þegar hún birti þessa mynd á Instagramsíðunni sinni. Það var eftir brúðkaup parsins þann 22.nóvember síðastliðinn en meðal gesta voru samleikarar Sofiu úr Modern family þáttunum, Reese Witherspoon, Channing Tatum og fleiri. Fréttir herma að brúðkaup parsins hafi í rauninni verið heil helgi af skemmtun. Þannig hófst boðið með fjölmennum kvöldverði, kvöldið fyrir brúðkaupið og fjörið hélt síðan áfram þaðan af.

\"\" 

Við mælum með á Hringbraut:

Fylgstu með fjölbreyttri dagskrá Hringbrautar: Kíkt í skúrinn, Besti maturinn með Völu Matt, Kvikan með Birni Þorlákssyni, Ólafarnir, Mannamál með Sigmundi Erni, Ég bara spyr, Heilsuráð Lukku, Eywitness, Lífið með Lóu, Afsal, Okkar fólk með Helga Pétursyni, Lög og réttur, Herrahornið og fleira. Og mundu að Hringbraut er ókeypis!

 

\"\"

Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!