Það sem þeir fundu í tómu vöruhúsinu var ótrúlegt!

Það er víða ástandið og í apríl 2010 birti ljósmyndari myndir á Flickr, sem gáfu til kynna að í tómu vöruhúsi í Lockport í New York fylki, væri að finna þvílíkan fjársjóð fyrir áhugamenn bíla og annarra tryllitækja. Hins vegar sagði ekkert meira um hvar vöruhúsið væri að finna. Í kjölfarið spruttu upp ýmsar kenningar og jafnvel sögusagnir um hvað þarna væri að finna, en þó þannig að enginn virtist vita hvar þetta vöruhús væri og því margir efins um að nokkuð væri satt af því sem verið væri að ræða. Á vordögum 2010, ákvað David nokkur Cuff, hins vegar að láta á það reyna. Hann fékk vin sinn Salva til að keyra með sér í 9 klukkustundir, frá heimafylkinu þeirra Washington, til Lockport í New York. 

Þar keyrðu þeir um svæðið en reyndu þó að vekja ekki á sér of mikla athygli. Markmiðið var að finna vöruhúsið, sem þeim tókst síðan á endanum. Að minnsta kosti fundu þeir vöruhúsahreysi, sem þeim fannst passa við lýsinguna. Á neðstu hæð hússins, fundu þeir síðan hurð sem þeir náðu að opna. 

 \"\"

En það var ekki fyrr en inn var komið, sem kjálkinn á Cuff og Salva hreinlega féll niður að hnjám.

Inni í vöruhúsinu fundu þeir hundruði gamalla mótorhjóla!

 \"\"

\"\"

\"\"

\"\"

Við nánari eftirgrennslan kom í ljós að eigandi vöruhússins, hafði misst það til borgarinnar vegna vangoldinna fasteignagjalda.

Hluti vöruhússins var hruninn og bæði hjól og hús mjög illa farið.

 \"\"

\"\"

Eftir nokkrar samningaumleitanir, náðist samkomulag við borgaryfirvöld um að eigandinn, sem heitir Frank, fengi að hriða úr vöruhúsinu allt sitt dót, ef hann gerði það fyrir nóvemberlok árið 2010.

Úr varð að Cuff, Salva og fjöldi sjálfboðaliða tóku sig til og björguðu mörg hundruð hjólum úr húsinu.

 \"\"

\"\"

\"\"

Mörg þessara hjóla eru verðmæt mótorhjól frá sjötta og sjöunda áratugnum, en allt í allt, spannaði tímabil þeirra rúmlega hálfa öld.

 \"\"

Á vefsíðunni Scribol segir að vöruhúsið hafi hins vegar brunnið til kaldra kola árið 2013. Lítið stendur því eftir af sögu þessa merkilega grafhýsis mótorhjólanna, sem eflaust hefur geymt eitt það dýrmætasta safn mótorhjóla sem vitað er um. Hjólunum hafði verið safnað saman í vöruhúsið á rúmlega 50 ára tímabili, vegna þess að upphaflegur eigandi hússins, rak söluumboð hjóla víðs vegar um Bandaríkin í áratugi. Árið 2002, lést sá maður en Frank nokkur hafði keypt vöruhúsið og allt með því og ætlaði sér að reka það sem varahlutaverslun. Kostnaðurinn við reksturinn hafði hins vegar orðið honum ofviða og því fór sem fór. 

\"\"

Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!

\"\"Vinsælasti bíladelluþátturinn á Íslandi er Kíkt í skúrinn sem sýndur er á Hringbraut! Þátturinn er sýndur á mánudagskvöldum á kl.20.30 og kl.22.30, endursýndur á þriðjudögum og á föstudagskvöldum kl.22.30 og á laugardögum. Þátturinn er í umsjón Jóhannesar Bachman. Fylgstu með á Hringbraut!