Það sem fannst á skútunni gat engan órað fyrir (ekki fyrir viðkvæma)

Fyrir stuttu síðan, var hópur fólks á siglingu rétt fyrir utan Filippseyjar, þegar það sá skútu sem virtist reka á sjónum mannlaus. Hópurinn ákvað að sigla að skútunni og kanna málin.

Það sem þau fundu, var þó eitthvað sem engan gat órað fyrir. Lík manns sem hafði verið saknað síðan árið 2009, fannst og það sem meira var: Það hafði í rauninni breyst í múmíu.

Á myndinni hér að neðan má sjá hvað blasti við fólkinu, þegar það gekk niður í káetuna í skútunni.

\"\"

Í ljós kom síðar, að umræddur maður var Manfred Fritz  Bajorat, margreyndur siglingamaður frá Þýskalandi. Manfred Fritz sigldi víða um heiminn með eiginkonu sinni í áratugi. Þegar þau skildu árið 2008, hélt hann siglingunum sínum áfram og þótti afar reynslumikill og góður. Manfred lét oft vita af sér á Facebook en síðasta kveðjan hans þar, var afmæliskveðja til vinar. Því hefur það verið vitað lengi að mjög líklega hafi eitthvað komið fyrir. Hvar Manfred væri eða hvað hefði komið fyrir, hefur hins vegar verið ráðgáta.

Talið er að Manfred hafi fengið hjartaáfall þar sem hann sat við borðið í káetu sinni. Hann var 59 ára gamall. Í káetunni fundust margar fjölskyldumyndir sem Manfred átti og eins lítil kveðja sem hann hafði verið að skrifa til fyrrverandi eiginkonu sinnar. Hún lést hins vegar árið 2010.

\"\"