Svona spara þeir ríku peninga

Hamingjan felst ekki í peningum, en flest okkar væru nú samt til í að eiga aðeins meira af þeim. Vefsíðan Frábær ráð, eða Awesometips, birti grein um daginn, undir yfirskriftinni ,,Svona spara þeir ríku peninga” (e.Wealthy People Save Monely Like This) og ekki úr vegi að renna aðeins yfir þann lista, sem þeir mæla með að fólk taki sér til fyrirmyndar.
 
1. Passaðu allar litlar upphæðir.
Við hugsum oft um stærri upphæðir eða skuldbindingar, en samkvæmt greininni, þá eru það litlu upphæðirnar sem við  þurfum að huga betur að. Því meira sem við skerum niður af smærri og óþarfa kostnaði, því meira spörum við af peningum.
 
2. Horfðu til framtíðar.
Okkur hættir alltaf til að eyða því sem við vinnum okkur inn: Jafnóðum! Tennessee Williams sagði hins vegar

,,Við getum verið ung og blönk, en við getum ekki verið gömul og blönk.”

Með þessu er mælt með því að huga að sparnaði fyrir efri árin.
 
\"\"3. Ekki eltast við stöðuímyndir.
Með þessu er átt við að við séum ekki að eltast við ,,ímynd” til að sýna í hvaða stöðu við erum eða hvernig við höfum það. Veraldlegir munir segja ekkert um okkur og því ættum við ekki að eyða peningum í dýrari hluti en við þurfum.
 
4. Settu þér markmið.
Hér er aftur verið að horfa til framtíðar og mælt með því að horfa á hlutina svolítið svart á hvítu: Í hvað eru peningarnir að fara? Heimilisbókhald gæti komið að góðum notum hér. John C. Maxwell sagði að fjárhagsleg markmið væru ekki áætlun, heldur upplýsingar um í hvað peningarnir eiga að fara. Án markmiðs, situr þú uppi með að vangaveltur um í hvað peningarnir fóru.
 
5. Vertu dugleg(ur) að vinna.
Ásýnd þeirra vel efnuðu virðist kannski vera sú að það fólk hafi allan tíman í heiminum til að njóta lífsins og gera allt sem því langar til. Hið rétta er, að þetta fólk er upp til hópa fólk sem vinnur mjög mikið og leggur mjög mikið á sig, til að eignast peninga.

Leikkonan Sofia Vergara er gott dæmi um þetta. Hún sagði:

,,Ég vinn mér meira inn en ég eyði. Ég fjárfesti. Ég horfi til framtíðar. Ég reyni að vera vakandi yfir góðum tækifærum og vinna meira en flestir búast við af mér.”

6. Taktu stóra sneið frá.

\"\"Aftur er verið að ræða um sparnað og það sem þú átt að leggja fyrir. Fólk sem er efnað, verður ekki efnað vegna þess að það leggur fyrir upphæð sem það finnur ekki fyrir að taka frá. Það verður efnað, vegna þess að það tekur ,,stóra sneið” og leggur fyrir til framtíðar.
 
7. Vertu hagsýn(n).
Það er ekkert öðruvísi með efnað fólk en annað fólk: Það eru allir ánægðir með að gera góð kaup. Vertu opin(n) fyrir tilboðum og verðum, sem eru hagstæð. Gerðu verðsamanburð þegar þú verslar.
 
8. Fjárfestu og aftur: Horfðu á klinkið.
Það er eitt að spara en annað að ákveða hvernig sparnaðinn á að nota. Í greininni er lögð áhersla á að horfa vel í litlu upphæðirnar, klinkið sem samanlagt gerir eitt stórt. Spara þar og velta því líka fyrir þér, hvaða sparnaður skilar þér mestu ávöxtunina.

9. Milljónamæringaformúlan.
Stundum er talað um ,,milljónamæringaformúluna,” og í greininni er vitnað í milljónamæringinn Warren Buffet sem sagði:

,,Ekki spara það sem stendur eftir hjá þér, eyddu aðeins því sem þú átt til eftir sparnað.\"

10. Engir dráttavextir eða vanskilakostnaður.
Efnafólk er mjög passíft á að greiða aldrei vexti. Settu þér markmið um að eyða öllu sem heitir óþarfa dráttavextir eða vanskilakostnaður.
Lokaorðin í greininni eru síðan aftur áminning um að horfa vel á allar litlar og óþarfa upphæðir.

Þar er vitnað í Benjamin Franklin sem sagði:

,,Horfðu á hvert klinkið er að fara. Smá leki er nóg til að sökkva skipi.\"

GANGI YKKUR VEL!

\"\"

Við mælum með á Hringbraut:

Fylgstu með fjölbreyttri dagskrá Hringbrautar: Kíkt í skúrinn, Besti maturinn með Völu Matt, Kvikan með Birni Þorlákssyni, Ólafarnir, Mannamál með Sigmundi Erni, Ég bara spyr, Heilsuráð Lukku, Eywitness, Lífið með Lóu, Afsal, Okkar fólk með Helga Pétursyni, Lög og réttur, Herrahornið og fleira. Og mundu að Hringbraut er ókeypis!

\"\"

Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!