Svona losnar þú við höfuðverk án verkjalyfja (myndband)

Það er ekki oft sem Zetan hreinlega verður að hvetja fólk til að horfa á myndband, en við svo sannarlega ætlum að gera það í þetta sinn. Þið þekkjið nefnilega flest það sem þarna kemur fram, en oft er gott að fá það staðfest hvort maður er að gera rétt.

Málið snýst um hausverkinn!

Já og að losna við hann, án verkjalyfja. Í þessu myndbandi, er bent á 6 leiðir þar sem við getum nuddað ákveðin svæði, til þess að losa okkur við höfuðverkinn. Þetta er þá svæðið aftan á hálsi, beggja megin við mænuna. Svæðið á milli þumalputta og vísifingurs. Með tveimur þumalputtum á svæðinu fyrir ofan stóru tá, á innanverðum fæti fyrir ofan ökkla og síðan á og í kringum augnsvæðið.

Zetan þorir að veðja að mörg ykkar hafið oft nuddað eitthvert þessara svæða þegar hausverkurinn er að gera út af við mann, en endilega kíkið á myndbandið og prófið ykkur áfram.

Verkjalyfin síðan í ruslið eða?

Við mælum með á Hringbraut:

Fylgstu með fjölbreyttri dagskrá Hringbrautar: Kíkt í skúrinn, Besti maturinn með Völu Matt, Kvikan með Birni Þorlákssyni, Ólafarnir, Mannamál með Sigmundi Erni, Ég bara spyr, Heilsuráð Lukku, Eywitness, Lífið með Lóu, Afsal, Okkar fólk með Helga Pétursyni, Lög og réttur, Herrahornið og fleira. Og mundu að Hringbraut er ókeypis!

\"\"

Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!