Svolítið ýkt fyrir öskudaginn? hefur eytt milljónum í búninga!

Öskudagurinn á næsta leyti og mörg börn heldur betur spennt fyrir deginum að venju. Að klæðast búningum og syngja fyrir gotterí er auðvitað skemmtilegt svo ekki sé meira sagt, þótt Zetan sakni þess nú reyndar að sjá ekki fleiri poka hengda utaní eins og gert var hér í ,,den.\" En hvað um það.... Við vitum auðvitað öll að sumir eyða meiri peningum í búninga en aðrir, en þó eflaust fæstir milljónum, eins og dæmi eru um. Hér erum við reyndar að vísa í 25 ára gamla konu í Bandaríkjunum, sem hefur keypt Disneybúninga fyrir hátt í á aðra milljón. Stúlkan sú heitir Sarah Ingle. 

Sarah er reyndar ekki að kaupa búningana fyrir milljónir, eingöngu fyrir búningapartý eða gleði eins og við þekkjum á Öskudaginn. Sarah vinnur nefnilega við að leika hina og þessa karaktera úr Disneymyndunum og segist hreinlega ELSKA starfið sitt. Vefsíðan Hellogiggles hefur eftir dömunni að hún hafi verið spurð hvort 14 þúsund dollara kaup, væru samt ekki einum ,,of” mikið. Nei, svaraði unga konan kát og sagði búninganna vel þess virði og meira til.

Við látum auðvitað einhverjar myndir fylgja með en vonandi að flestir hér heima, láti sér nægja ódýrari kaup eða heimatilbúna búninga.

Eða er fólk farið að tapa sér í búningakaupum?

\"\"

\"\"

\"\"

\"\"

Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!