Svindlar þú stundum á verkjalyfjum? (tekur aðeins of mikið, of oft eða útrunnin lyf?)

Zetan rakst á áhugaverða grein á Today, þar sem sagt er frá könnun um hlutfall þeirra sem taka inn verkjalyf og meðöl, sem þó eru útrunnin. EÍ greininni kemur fram að 43% fólk lítur á dagsetningar lyfja, sem leiðbeiningar um hvenær meðöl eru útrunnin, en ekki endilega reglu um að ekki megi taka þau lengur. Sambærilegur fjöldi fólks, viðurkennir að taka oft aðeins meira magn af meðölum, en ráðlagt er í leiðbeiningum. Hér er þá verið að tala um algeng lyf eins og íbúfen eða lyf sem fólk tekur til dæmis við höfuðverk eða öðrum algengum kvillum.

Fyrir líkaman er þetta hins vegar ekki gott og í sumum tilfellum, getur þetta veikt líffæri líkamans vegna einhvers, sem kemur upp síðar á ævinni. Í grein Today, segir sérfræðingur sem rætt er við:

,,Einstaklingur sem er hraustur og stundar líkamsrækt, finnur kannski til verkja í neðra baki. Að taka verkjalyf við þessu, samkvæmt ráðlögðum skammti, ætti því að vera í lagi.

Þessi sami einstaklingur, gæti samt lent í því á efri árunum að eitthvað annað fer að klikka. Það gætu þá verið veikleikar sem koma upp í nýrum sem dæmi og ef svo er, geta verkjalyfjum farið að fylgja aukaverkanir.\"

Þetta á þá aðallega við um lyfjanotkun, sem er mjög algeng og stöðug. Aukaverkanir við að taka inn lyf í meira mæli en ráðlagt er, geta hins vegar verið eftirfarandi:

Aukin hjartsláttur

Ógleði og jafnvel uppköst

Magaverkur

Lítil matarlyst

Dekkra þvag

Alvarlegri afleiðingar geta einnig komið fram á síðari stigum og nánar má lesa um þær í umræddri grein. Aðalmálið er þó að halda sig við ráðlagða skammta, vera í sambandi við lækninn sinn og fylgja eftir þeim reglum sem skráð eru um notkun allra lyfja sem þú tekur.

\"\"

Við mælum með á Hringbraut:

Fylgstu með fjölbreyttri dagskrá Hringbrautar: Kíkt í skúrinn, Besti maturinn með Völu Matt, Kvikan með Birni Þorlákssyni, Ólafarnir, Mannamál með Sigmundi Erni, Ég bara spyr, Heilsuráð Lukku, Eywitness, Lífið með Lóu, Afsal, Atvinnulífið, Herrahornið og fleira. Og mundu að Hringbraut er ókeypis!

\"\"

Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!