Súkkulaði gott gegn kvefi: lesið þetta!

Stundum rekst Zetan á rannsóknir sem verða að teljast alveg dásamlegar og hér er ein þeirra! Á vefsíðunni Brightside rakst Zetan á grein, þar sem segir að ef þú ert með erting í hálsi eða að hósta.... og þá jafnvel að hósta á óþægilegum augnablikum.... er upplagt að fá sér súkkulaði!!!!

NAMM, NAMM!

Reyndar kemur fram í greininni að þetta á að vera dökkt súkkulaði þannig að hér erum við væntanlega bara að tala um eitt stykki gamla góða Nóa Síríus suðusúkkulaðið. Í umræddri grein, er vísað til rannsóknar prófessors við Háskólan í Hull í Bretlandi, Aline Maurice. Samkvæmt hennar niðurstöðum, getur dökkt súkkulaði haft betri áhrif en mörg meðöl á erting í hálsi eða þurran hósta. Það er vegna þess að súkkulaðið er frekar þykkt og myndar nokkurs konar húð í hálsi og í munni, sem dregur úr erting eða óþægilegum hóstaköstum.

Uhh...er akkúrat að fara að hósta, verð að hætta....hvar er súkkulaðið aftur?

\"\"

 

Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!