Sögusagnir um skilnað brad pitt og angelina jolie

Leikara hjónin Brad Pitt og Angelina Jolie þarf ekki að kynna fyrir mörgum.  Þau byrjuðu saman fyrir rúmum áratug síðan með eftirminnilegum hætti þegar Brad Pitt skildi við Jennifer Aniston eftir að hafa leikið á móti Angelinu í myndinni Mr. and Mrs. Smith árið 2005. Slúðurheimar erlendis fóru á hliðina og aðdáendur skiptust í fylkingar, lið Jennifer eða lið Angelina. 

Fljótlega eftir að þau tóku saman ættleiddi Brad börnin hennar Angelinu og áttu þau saman þrjú börn til viðbótar. Parið hefur verið duglegt að halda sér frá slúðurpressunni og giftu sig meðal annars árið 2014 aðeins með börnin viðstödd. Það er því ekki skrítið að slúðurpressan erlendis sé í sjokki yfir orðrómi um skilnað þeirra. Sérstaklega í ljósi þess að þau léku saman í mynd á síðasta árið sem Angelina leikstýrði.

\"Brad

 

Þær sögusagnir eru á kreiki að Brad og Angelina séu búin að vera aðskilin í tæpt ár. Að sögn vefsíðunnar Hollywoodlife eru hjónin að undirbúa skilnað, en það þó eftir að hafa reynt að bjarga hjónabandinu í langan tíma. Staðan nú sé hins vegar þannig að þau geri lítið annað en að rífast eða deila þögninni. 

 

Zetan er ekki alveg tilbúin að sjá endalokin á þessu flotta og glæsilega pari.

En hvað heldur þú, eru þau að fara skilja? 

 

 Fylgstu með fjölbreyttri dagskrá Hringbrautar: Kíkt í skúrinn, Besti maturinn með Völu Matt, Kvikan með Birni Þorlákssyni, Ólafarnir, Mannamál með Sigmundi Erni, Ég bara spyr, Heilsuráð Lukku, Eywitness, Lífið með Lóu, Afsal, Okkar fólk með Helga Pétursyni, Lög og réttur, Herrahornið og fleira. Og mundu að Hringbraut er ókeypis!

\"Hópmynd