Smygl sem tókst....næstum því!!! 12 myndir

Þvílíkt hugmyndarflug! Já, þetta er það fyrsta sem Zetunni datt í hug þegar hún rýndi í myndir og frásagnir þar sem sagt er frá smyglvarningi og mismunandi smyglleiðum. Það liggur við að hér þurfi að hrósa fyrir hugmyndarflugið því sumt sem þarna má sjá, myndi fæstum detta í hug.

Skoðum nokkur dæmi.

 

1. Kókaín í brjóstapúðum.

Í júní í fyrra, var kona handtekin í Honduras, en hún þótti grunsamleg hjá tollinum því hún var augljóslega mjög stressuð. Í ljós kom að í brjóstapúðum sem í hana höfðu verið grætt, var heilmikið magn af kókaíni.

\"\" 

2. Marijuana í brimbrettum.

Indónísk yfirvöld létu ekki plata sig árið 2004, þegar hópur af ,,sörfurum,” fór í gegnum tollinn í Jakarta og sögðust vera að heimsækja landið til að sækja sjóinn.

 \"\"

3. Peningar í brauðmeti

Í mars 2012, reyndu smyglarar að smygla töluverðu magni af peningum til Þýskalands, með því að pakka þeim inní brauðmeti. Bakstur sem án efa hefur tekið sinn tíma, enda heilmikið deig í kringum þetta!

 \"\"

4. Ecstasytöflur í leikfangi (Herra Kartöfluhaus)

Yfirvöld í Ástralíu stöðvuðu Íra sem reyndi að smygla ecstasy töflum í hausnum á Herra Karftöfluhaus, leikfangi sem margir kannast við.

 \"\"

5. Fjögurra ára drengur og Mikki mús með byssu

Já, ekkert mjög barnværn sá Mikki mús sem fannst með byssu á flugvellinum í Warwick á Rhode Island. Það sem verra var, er að það var 4 ára barn sem var látið sjá um að smygla vopninu. Tollverðir sáu hins vegar byssuna þegar leikfangið var keyrt í gegnum myndavélina.

 \"\"

6. Nammi-metamfetamín?

Sumarið 2012, fundu yfirvöld í Kaliforníu metamfetamín sem búið var að pakka vel í súkkulaði flugfarþega. Viðkomandi var með 4 stykki á sér.

 \"\"

7. Kókaín í vökvaformi í rommflöskum.

Á Kennedy flugvellinum í New York var maður handtekinn með nokkuð magn af rommflöskum, sem reyndust ekki innihalda neitt áfengi því vökvanum í þeim hafði verið skipt út fyrir kókaín í vökvaformi. Já allt reynt....

 \"\"

8. Gervi-ólétta!!!

28 ára og að virtist vera kasólétt, var ung kona stöðvuð á flugvelli í Kanada fyrir grunsamlega hegðun. Í hennar tilfelli kom í ljós að engin var óléttan eða barnið í bumbunni, því í gervi-óléttubumbu var búið að koma fyrir heilmiklu magni af kókaíni.

 \"\"

9. Jesús og hassið.

Sumir halda eflaust að með því að þykjast vera svolítið kristilegir, þá aukist líkurnar á að koma smyglvarningi í gegn. Þannig var maríjúana komið fyrir á bakhlið Jesúmyndar sem fannst á flugvelli í Texas árið 2010. Smyglarinn hafði þó ekki áttað sig á því að sérþjálfaðir eiturlyfjahundar leita fyrst og fremst af lykt af dópi en pæla ekkert í því hvort Jesús sé á einhverri mynd frekar en annar!

 \"\"

10. Gullherðatré og rándýr!

Auðvitað er ekki bara verið að smygla eiturlyfjum á milli landa, því gull er eitt af því sem smyglarar reyna að komast með í gegn. Í Suður Kóreu fundust mjög verðmæt herðatré, því þau voru gerð úr skíragulli og var tilgangurinn auðvitað enginn annar en sá að koma gullinu sjálfu í gegnum tollinn.

 \"\"

11. Uppdópaðar pöddur.

Í Perú, reyndu aðilar að smygla kókaíni í gegnum tollinn með því að fylla pöddur af því. Þær hafa væntanlega verið ,,nokkuð hátt uppi” áður en þær auðvitað steindrápust.

 \"\"

12. Kókaíngifs og ,,hinn særði\" var 66 ára!

Síðan er það kókaíngifsið sem 66 ára gamall maður var með þegar hann fór í gegnum tollinn á Spáni. Í ljós kom að gifsið var langt frá því að vera hið hefðbundna gifs frá lækni eða sjúkrahúsi, því gifsið sjálft var búið til úr kókaíni.

\"\" 

 Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!