Íslensk rómantík: skrifaði konu sinni fallegt bréf á konudaginn

Blaðamaður Zetunnar rakst á þessa fallegu kveðju á Facebook og fékk leyfi höfundar að birta hana hér. Tryggvi Rúnar sendir konu sinni opinbert bréf á Facebook þar sem hann skrifar óð til hennar og annara kvenna. Stoltur, þakklátur og ástfanginn af sinni konu og barnsmóður. Blaðamaðurinn, sem er kvenkyns, er alveg heilluð af þessu fallega pari og við gefum nú Tryggva Rúnari orðið: 

Konur. Konur eru ótrúlegar. Konur eru í raun magnaðasta fyrirbæri guðs. Af hverju? Því þær eru alltaf með allt á hreinu. Það er staðreynd. Ég sjálfur ólst upp með mikið af konum í kringum mig, mamma, systir, amma og frænkur sem mótuðu mig í gegnum lífið. Fyrir það gæti ég ekki verið meira þakklátari. Því þær kenndu mér jafnrétti, jafnræði, kurteisi, að bera virðingu fyrir konum og síðast en ekki síst kenndu þær mér að karlar eru ekki æðri konum. Ég held að þetta uppeldi hafi skilað sér til þess dags í dag. 

Kærasta mín, sem ég er svo heppinn að geta kallað “konan mín”, er hið fullkomna dæmi um ótrúlega konu. Þessi ógnvægilega blanda af íslenskum og þýskum genum hefur mótað hina einu sönnu ofurkonu. Þessi kona hefur kennt mér svo ótrúlega margt síðan ég kynntist henni og er ég óhræddur að viðurkenna að hún hefur verið fyrirmynd mín í lífinu í næstum fimm ár. Það sem hún lagði áherslu á að kenna ómótaða tvítuga stráknum er að sýna frumkvæði, bera ábyrgð, sýna metnað og vera heiðarlegur. Í kennslumati fengi hún 10 í einkunn frá mér. 

Afrek konunnar minnar eru ekki af verri endanum. Hún hefur búið í Englandi, á Spáni og í Bandaríkjunum. Hún hefur lokið við tvær BA gráður, eina MA gráðu og eitt diplóma nám í háskóla auk þess sem hún útskrifaðist sem dúx úr Borgarholtsskóla. Jafnframt er hún óstöðvandi vinnukraftur sem hver atvinnurekandi yrði heppin að fá og að lokum er hún með fjármál sín á kristaltæru sem er öfundsverður eiginleiki. 

Þrátt fyrir þetta þá er hún, þegar á botninn er hvolft, best í hlutverkinu móðir. Hún er ástrík, góð og skilningsrík. Veitir JAT alla þá ást sem hann þarfnast og gefur sér tíma í að vera mamma hans. Kennir honum þau gildi sem mér voru kennd þegar ég var yngri og leyfir honum að vaxa og dafna sem sjálfstæður eintaklingur. 

Konan mín hefur þó átt erfið tímabil. Hún hefur veikst alvarlega, hún hefur misst nána ættingja og hún hefur farið langt niður. En ofurkonan dvelst þó ekki lengi niðri og skýst aftur upp og heldur áfram að gera heiminn að betri stað fyrir þá sem eru henni næstir. Hún er ótrúlega þessi kona. Hún er konan mín. 

Helena Konráðsdóttir mig langar að þakka þér opinberlega fyrir allt sem þú hefur gert fyrir mig. Mig langar að þakka þér fyrir ómældan stuðning og skilning. Mig langar að þakka þér fyrir að ala mér barn. Mig langar að þakka þér fyrir að vera til. Mig langar að þakka þér fyrir að vilja verja framtíð þinni með mér. Elsku Helena, gleðilegan konudag elsku kona mín.

 

Tryggvi Rúnar ásamt unnustu sinni Helenu

\"\"

 

Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!