Sköllóttir eiginmenn eru klárlega málið: 9 ástæður

Ætli það taki ekki margar eiginkonur undir það að sköllóttir menn séu klárlega málið. Þótt ýmsar aðrar láti sig dreyma um einhverja hárprúða eins og David Beckham eða Brad Pitt, erum við sannfærð um að þær eru margar eiginkonurnar sem myndu einmitt segja að það séu sköllóttir menn sem séu klárlega málið.

Ekki aðeins séu þeir sexý og karlmannlegir, heldur eru kostirnir við hárleysið ótrvíræðir. Hér eru 9 ástæður fyrir því að einn sköllóttur á heimilinu geti akkúrat verið draumastaðan:

1. Þeir eru ódýrir í rekstri.

Reglulegar heimsóknir í klippingu á hárgreiðslustofuna þarf ekkert að hugsa um, né útgjöld fyrir sjampó, gel eða aðra fylgihluti.

2. Þeir eru sjálfsöryggir.

Að vera sköllóttur og stoltur af því er karlmaður með sjálfsöryggi. Fáar konur sem segjast ekki hrifnar af þeim eiginleika.

\"\"

3. Þeir eru sexý og töff.

Sköllóttir karlmenn eru upp til hópa algjörir töffarar, ef ekki töffaratýpurnar þá alla vega þræltöff í útliti. Þrælsexý.

4. Ekkert vesen í sturtunni.

Það þarf enginn að hafa áhyggjur af því að þurfa að þrífa eftir þá hárflyksurnar í sturtubotninum eða baðkarinu. Hreinlegir með eindæmum.

\"\"

5. Þeir eru skínandi fínir.

Karlmenn með skalla má stundum lýsa sem ,,skínandi fína” og það í orðsins fyllstu merkingu. Geta meira að segja verið svolítið krúttlegir þegar þeir eru smá rauðir eftir sólina á skallanum.

6. Ekkert vesen með hárið heima fyrir.

Nú geta sumir sagt að þeir fari örsjaldan í klippingu á hárgreiðslustofu því það sé bara frúin heima sem sjái um að snyrta þá reglulega. Eiginkonur skollóttra karlmanna þurfa hins vegar ekkert að spá í neina aðstoð sem þessa.

7. Þeir eru komnir yfir stigið ,,ég er að fá skalla.”

Margir segja karlmenn fara í gegnum hálfgerða krísu þegar hárið fer að þynnast og skalli að myndast á höfðinu. Sköllóttir karlmenn eru búnir að yfirstíga þetta tímabil.

\"\"

8. Eru karlmennskan uppmáluð.

Það er hægt að benda á ófáar hetjurnar í kvikmyndunum til að undirstrika það hvers vegna sköllóttir karlmenn eru karlmennskan uppmáluð. Þarf varla frekari orðanna við.

\"\"

9. Eru mjúkir innvið beinið.

Að strjúka yfir glansandi skallann á eiginmanninum fær síðan töffarann til að mala eins og ljúfan kettling. Því auðvelt að draga fram hinar mýkstu hliðar í karlmanninum sem að öðru leyti er karlmennskan og hetjuímyndin uppmáluð!

\"\"

Við mælum með á Hringbraut:

Fylgstu með fjölbreyttri dagskrá Hringbrautar: Kíkt í skúrinn, Besti maturinn með Völu Matt, Kvikan með Birni Þorlákssyni, Ólafarnir, Mannamál með Sigmundi Erni, Ég bara spyr, Heilsuráð Lukku, Eywitness, Lífið með Lóu, Afsal, Okkar fólk með Helga Pétursyni, Lög og réttur, Herrahornið og fleira. Og mundu að Hringbraut er ókeypis!

\"\"

Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!