Sjáðu sumarhús tom cruise – myndir

Jæja, nú er um að gera að fara að leggja fyrir smá pening því Tom Cruise er búinn að setja sumarhúsið sitt á sölu. Það er staðsett á svæði sem heitir Telluride í Colarado fylki í Bandaríkjunum og af myndunum af dæma, trúir Zetan ekki öðru en því að Tom Cruise hafi heillast af Íslandi þegar hann dvaldi hér um árið. Í sumarhúsinu eru 3 svefnherbergi og það er allt hið glæsilegasta. Einkalóðin er mjög stór, en þaðan er aðeins 12 mínútna akstur í þjónustu og góð skíðasvæði eru allt um kring. Cruise keypti húsið um það leyti sem hann og fyrrverandi eiginkona hans, Nicole Kidman, ættleiddu börnin sín tvö. Margir kannast eflaust við einhverjar myndir, því fyrstu myndirnar sem birtar voru af dótturinni Suri, sem Cruise og seinni konan hans, Katie Holmes, eignuðust árið 2006, voru teknar í sumarhúsinu. Fasteignasalinn Bill Fandel sagði við Wall Street Journal að húsið væri nú til sölu, vegna þess að Cruise hefur sjaldan dvalið þar undanfarin misseri og húsið því í lítilli notkun.

Söluverð eru litlar 59 milljónir dollara!

\"\"

\"\"

\"\"

\"\"

\"\"

\"\"

\"\"

\"\"

\"\"

\"\"

\"\"

\"\"

Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!