Birti lista yfir það sem má (og má ekki!) gefa syninum í afmælisgjöf

Tja..., auðvitað eru óskalistar algengir fyrir afmæli og jól, en Zetan rekst sjaldnar á lista yfir það sem má eða má ekki gefa börnum í afmælis- eða jólagjafir. Hér er þó listi, sem móðir drengs, birti á Facebooksíðunni sinni. Afmælisdagur drengsis var rétt handan við hornið. Hann var að verða 1 árs. Til að forðast óánægju og óþarfa vesen, ákvað mamman að birta stöðufærslu á Facebook, með leiðbeiningum um hvað ætti að kaupa fyrir drenginn og hvað mætti ekki gefa.

Til vara, bað hún þó um að ef gjöf yrði keypt, sem ekki væri á óskalistanum, að kvittun yrði látin fylgja með, því þeim gjöfum yrði skilað. Hún nefnir einnig að það sé eins og að henda peningum í ruslið að láta kvittun ekki fylgja gjöfum, því annars fáist oft ekki nema helmingur andvirði gjafarinnar eða ekkert, þegar vörunni er skilað.

Það var pistlahöfundur á vefsíðunni Scarymommy, sem benti á umrædda stöðufærslu. Nöfn hafa verið afmáð, þar á meðal nafn barnsins. Við þýðum stöðufærsluna lauslega og skulum þá bara kalla drenginn Nonna.

Í stöðufærslunni eru fyrst almennar leiðbeiningar og síðan óskalisti með 4 vörum sem vinir og vandamenn eru beðnir um að kaupa.

Með óskalistanum fylgir slóð, þannig að engin hætta sé á að röng gjöf verði keypt.

Þá er tekið fram að ömmurnar og afarnir, hafi fengið önnur 4 atriði á lista en aðrir gestir beðnir um að láta vita sérstaklega, ef þeir kaupa ekki það sem er á óskalistanum, svo foreldrarnir geti gert ráðstafanir og keypt það dót hið fyrsta sjálf.

Síðan segir:

,,Vinsamlegast kaupið ekki aðrar bækur en við nefnum hér, því Nonni á nú þegar 32 bækur, plús 25 bækur í geymslu sem bíða þar til hann verður 3 ára eða eldri (og eins og er, þolir hann ekki þegar við erum að reyna að lesa fyrir hann).

Alls ekki kaupa neitt nafnamerkt fyrir hann, til að klæðast utandyra. Fatnaður sem er nafnamerktur, eykur líkur á að börnum sé rænt þannig að ég vil ekki auglýsa nafnið hans né dót sem hann fær. Ef það er eitthvað sem þið gefið honum og er nafnamerkt, þá þarf það að vera eitthvað sem er aðeins til notkunar innandyra.

Boðskortið sjálft berst ykkur síðan bráðlega í pósti.\"

\"\"

Við mælum með á Hringbraut:

Fylgstu með fjölbreyttri dagskrá Hringbrautar: Kíkt í skúrinn, Besti maturinn með Völu Matt, Kvikan með Birni Þorlákssyni, Ólafarnir, Mannamál með Sigmundi Erni, Ég bara spyr, Heilsuráð Lukku, Eywitness, Lífið með Lóu, Afsal, Okkar fólk með Helga Pétursyni, Lög og réttur, Herrahornið og fleira. Og mundu að Hringbraut er ókeypis!

\"\"

Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!