Sama konan – margir ættbálkar: myndir

Á vefsíðunni BoredPanda, getur fólk alls staðar að úr heiminum birt myndir og stuttan greinatexta með. Þar er því oft að finna ótrúlega flottar myndir eða verk, frá ólíkum höfundum. Gott dæmi um góða grein er nýleg grein eftir ungverska blaðakonu, Boglarka Balogh, sem vildi vekja athygli á því hvað menning og staða getur verið mismunandi í heiminum. Hún sviðsetti sjálfan sig því eins og konu mismunandi ættbálka í Afríku og fékk vin sinn, grafískan hönnuð, til að aðstoða sig. 

1. Himba ættbálkurinn: Hvers vegna eru þau appelsínugul?

Jú, til að verja húðina fyrir hita, moskítóflugum, þurrki og fleira, notar Himba ættbálkurinn sérstaka blöndu sem fólk ber á sig og verður við það hálf appelsínugult á litin. Þessi blanda þykir afar eftirsótt af ýmsum snyrtivöruaðilum, enda unnin úr náttúrunni og hráefnin talin mjög góð fyrir húðina. Aðeins 50.000 manns teljast til Himba ættbálksins, en þessi ættbálkur býr í Suður Angóla.

 \"\"

 

2. Karo ættbálkurinn: Leggja áherslu á fallega förðun og skraut. 

Karo ættbálkurinn er sá minnsti í Suðvestur Eþópíu en til að aðskilja sig frá öðrum ættbálkum, málar fólkið sig í framan og skreytir með blómum. Á þessari mynd má sjá dæmigerða förðun konu, en bæði menn og konur mála sig daglega. Litlir punktar eða stjörnur eru áberandi í förðun þeirra, sem auðvitað er bara unnin úr náttúrunni sem þau búa við. Karo ættbálkurinn er nokkuð þekktur fyrir fallega förðun, ekki bara í andliti, heldur einnig á líkama. Þá er mikið gert úr hárgreiðslum karlmanna, sem segja síðan til um hver staða þeirra er. Í hárið er notuð rauð mold.

\"\" 

 

3. Turkana ættbálkurinn: Þrisvar sinnum fjölmennari en íslenska þjóðin.

Tæplega milljón manns eru í Turkana ættbálkinum en þeir eru þekktir fyrir að rækta kameldýr, búa til körfur og lifa af ýmsum dýraafurðum. Geitur, kameldýr, apar, zebrahestar, allt eru þetta dýr sem teljast mikill auður hjá Turkanafólki en þar þurfa kalmenn að koma sér upp ákveðnum bústofni, áður en þeir fá að kvænast konu. Eins og sjá má á mynd, raka konur hárið nánast allt af en skilja eftir ákveðinn lokk. Konur bera hálsmen og annað andlits- og eyrnaskraut.

 \"\"

 

4. Mursi ættbálkurinn: Með stóran platta í vörum.

Um 6-12 mánuðum áður en ungar stúlkur eru giftar, eru varir þeirra gataðar og byrjað er að vinna að því að víkka þær út fyrir stóran platta sem þær bera síðan í vörum. Í flestum tilfellum eru stúlkur á aldrinum 15-18 ára þegar þetta er gert og það eru þá mæður þeirra sem sinna verkinu.

Fyrst er settur 1-2 sentímetra platti og varirnar gataðar til að halda honum í. Til að byrja með er settur platti úr við. Sárin eftir götunina gróa á 2-3 vikum og þá er settur stærri platti úr við í varirnar.

Þegar kona er tilbúin til að bera um 4 sentímetra platta í munninn, er viðarplatta skipt út fyrir leir. Mursikonur bera að jafnaði 8-20 sentímetra platta í vörunum.

Mursi ættbálkurinn hefur minnkað mjög síðustu áratugi og teljast nú aðeins um 7.500 manns til Mursibálksins. Ættbálkurinn býr í Eþópíu og er mjög einangraður.

\"\" 

 

5. Arbore ættbálkurinn: Hinn dansandi ættbálkur.

Arbore ættbálkurinn telur aðeins 6.850 manns og býr í suðvestur Eþópíu. Hann er nokkuð þekktur fyrir afríska söngva og dansa eins og þeir þykja hvað bestir en ættbálkurinn trúir því að með söng og dans, boli þeir í burtu neikvæðri orku.

Fólk í Arbore er merkt ákveðnum punktum á barmi og kvið. Klæðnaður kvenna einkennist af svartri slæðu á höfði og mörgum hálsmenum.

\"\"

 

6. Daasanach: Viðarkolla með töppum af flöskum .

Þótt Daasanach dreifist um Kenyu, Súdan og Eþópíu, teljast þeir innan við 50.000 manns. Fyrir um hálfri öld, átti ættbálkurinn mikið land í Kenyu, en þaðan hafa þeir hrakist síðustu áratugina, með þeim afleiðingum að fáir standa eftir og dreifast nú um nokkur svæði. Kynfæri kvenna eru limlest, en að öðrum kosti mega þær ekki giftast, eru kallaðir strákar og mega ekki klæðast fatnaði. Einkenni Daasanach ættbálksins er höfuðfatnaðurinn þeirra, sem er nokkurs konar viðarkolla með áföstum flöskutöppum. Tapparnir eru vinsælir því þegar fólk er að dansa, þá mynda þeir skemmtileg hljóð.

Fjöldi tappa á höfuðfati er tákn um velgengni, því það getur tekið margar vikur og mánuði að safna töppum í eitt höfuðfat.

\"\" 

 

7. Wodaabe ættbálkurinn: Einstök fegurð.

Þessi ættbálkur dreifist frá Nígeríu til miðríkja Afríku, en í hópnum teljast þó aðeins um 45.000 manns í dag. Wodaabe ættbálkurinn er þekktur fyrir fegurð og þykir öðru fólki fallegri, hvort sem um er að ræða konur eða karlmenn. Sterkar hefðir ríkja í ættbálkinum og þar má meðal annars nefna mjög mikilvæga hátið, Gerewol, sem haldin er í september ár hvert.

Þar keppa karlmenn í fegurðarkeppni en konurnar dæma.

Á þessari hátíð er leyfilegt að vera í kynferðislegu sambandi við það fólk sem hver og einn vill, en hjónabönd eru ákveðin af foreldrum stuttu eftir fæðingu.

\"\" 

Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!