Saga af fingri þegar ástvinur deyr - myndir

Síðustu aldirnar hefur Dani ættbálkurinn í vestur Papua héraði í Indónesíu, lifað nokkuð óáreittur enda lengi vel ekki vitað um tilvist hans. Hin síðustu ár, hafa ferðamenn þó sóst í að geta heimsótt heimasvæði ættbálksins og það ekkert síst vegna ýmissa sérkennilegra hefða sem Dani ættbálkurinn er þekktur fyrir. Sumar þessara hefða hafa verið bannaðar með lögum, en eru þó enn stundaðar af sumum. Ein þessara hefða, er að saga hluta af fingri, þegar ástvinur deyr.

Þetta þýðir að margir Daniíbúar, sjást með afmyndaðar hendur. Og því eldri sem fólk er, því fleiri fingur hefur það oft misst.

 \"\"

Að saga hluta fingurs af, á þó ekki við nema ef viðkomandi var náinn fjölskyldumeðlimur, til dæmis maki. Tilgangurinn er sá að sýna sorgina, sem því fylgir að missa nákominn.

\"\"

Dani fólkið trír því að með því að láta saga af sér hluta af fingri, séu þau ekki aðeins að staðfesta hversu heitt þau elskuðu viðkomandi, heldur endurspegli sársaukinn við að missa hluta fingurs, sársaukann sem viðkomandi upplifir í sorginni.

 \"\"

Önnur óvenjuleg hefð hjá Danifólkinu, er uppstilling á múmíukenndum líkum þeirra sem töldust hærra settir í ættbálknum. Þá er líkið látið brenna í eldi í nokkrar vikur, án eldiviðs. Þegar þetta er gert, verður líkið ekki að ösku eins og gerist við líkbrennslu eins og við þekkjum, enda kistan þá notuð sem eldiviður. Nei, útkoman verður sú að líkið verður múmíukennt og svart og er þá oftar en ekki stillt upp í ásjón íbúa, af virðingaskyni við hinn látna. Þetta er ekkert síður eftirsótt hjá mörgum ferðamönnum að sjá, sem eru tilbúnir til að greiða nokkurt fé til að komast í tæri við gamlar hefðir Danifólksins.

\"\"

 

\"\"

Þó ber að nefna að margar aðrar hefðir ættbálksins eru bæði jákvæðar og skemmtilegar og langt frá því að vera bannaðar af yfirvöldum. Þannig er Danifólkið til dæmis þekkt fyrir að taka þátt í gleðihátíðum, söng og dansi.

\"\"

Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!