Rökkuðu niður 4 ára dreng á netinu, en mamman sneri vörn í sókn

Sonur Alice Ann Meyer’s er 4 ára og heitir Jameson. Það kom í ljós við fæðingu að Jameson fæddist með sjaldgæfan fæðingargalla sem lýsir sér þannig að höfuð og andlit hans, þróast ekki á eðlilegan hátt. Fjölskyldan býr í Texas í Bandaríkjunum og hefur Alice verið dugleg að blogga um son sinn frá því að hann fæddist. Þar segir hún frá því hvernig Jameson gengur, hvernig honum heilsast og hvað er svona helst í fréttum. Bloggsíðan var fyrst og fremst hugsuð fyrir vini og vandamenn, sem vildu fylgjast með.

En.... því miður: Það fyrirfinnast svartir sauðir alls staðar og á netinu geta þeir verið hvað verstir. Þannig komst Alice að því að þar var ókunnugt fólk að dreifa myndum af Jameson, með tilheyrandi svívirðingum, uppnefnum og öðrum ljótyrðum um drenginn.

En Alice ákvað að láta ekki kyrrt liggja, heldur sneri vörn í sókn. Á bloggsíðuna sína skrifaði hún:

\"\",,Fyrir viku síðan, eyddi ég laugardagskvöldinu mínu í að rífast við einhvern á netinu, sem hafði birt mynd af syni mínum á Facebooksíðunni sinni. Myndin fékk 5000 líkar við og var deilt 3000 sinnum. Ég tilkynnti myndina 100 sinnum, ef ekki 1000 sinum til Facebook og fékk fullt af fólki til að aðstoða mig í að reyna að fá myndina fjarlægða, en það var ekki fyrr en sólahringi síðar sem Facebook lét loksins tilleiðast og tók út myndina og ummælin sem henni fylgdu.

Frábært!

En ánægjan var skammvinn því fljótlega rakst ég á aðra síðu. Þar var búið að birta mynd af syni mínum og sú mynd hafði fengið ríflega 1000 líkar við og var álíka oft deilt. Mér fannst hjartað á mér hætta að slá.

En við héldum áfram að berjast. Í þetta sinn tók það marga daga að fá Facebook til að fjarlægja myndina. Samt notaði ég öll rök sem ég gat notað: Benti á að það var verið að uppnefna drenginn og skrifa um hann ljót níð, að myndin væri stolin af bloggsíðunni minni og ég veit ekki hvað og hvað.\"

Alice segir síðan frá því að hún hafi fundið fleiri myndir. Þær voru á Twitter, Instagram, Tumblr. Út um allt. Í pistlinum bætti hún því við:

,,Ég held að þið ykkar sem gerið grín að syni mínum, ættuð kannski að fá aðeins meiri upplýsingar, áður en þið deilið myndum af syni mínum, svo aðrir geti hlegið að honum. Ég ætla því að segja ykkur aðeins frá þessum dreng, sem ykkur finnst svona fáránlegur á að sjá.  Hann heitir Jameson. Hann lítur í alvörunni svona út. Jameson fæddist nefnilega með sjúkdóm sem heitir Pfeiffer syndrome.”

Síðan skýrir hún út, í hverju sjúkdómur Jameson felst. Alice kom líka með ábendingar til Facebook, Instagram og Twitter. Þar þakkaði hún Twitter sérstaklega fyrir góð viðbrögð og gott tilkynningakerfi. Hún var líka mjög ánægð með Instagram.

\"\"En Facebooktilkynningakerfið sagði hún ömurlegt!

,,Þið þurfið alvarlega að taka ykkur á. Í alvörunni, þetta tilkynningakerfi hjá ykkur er handónýtt. Fyrstu viðbrögðin ykkar voru að senda mér tölvupóst til baka þar sem þið sögðuð að stöðufærslan og myndbirtingin, væri ekki að brjóta í bága við reglurnar ykkar. 48 klukkustundum síðar, senduð þið mér aftur tölvupóst og sögðuð að stöðufærslan og myndbirtingin hefði verið fjarlægð vegna þess að hún bryti í bága við ykkar reglur. Hvernig stendur á því? Þetta var sama stöðufærslan?”

Í viðtali Today við Alice, sagði hún að skrifin sín hefðu vakið mikla athygli og margar fjölskyldur veikra eða fatlaðra barna, hefðu haft samband með svipaðar sögur að segja. Hún og eiginmaður hennar, Frank, væru því ákveðin í því að reyna áfram að sporna við því að netsamfélagið gæti vaðið svona áfram, með níði og kaldhæðni sem væri að bitna á þeim sem síst skyldi: Börnunum okkar! Alice ætlar því ekki að hætta að skrifa á bloggsíðuna eða birta myndir af Jameson. Nei, hún ætlar að snúa vörn í sókn og berjast gegn netníði.

,,Það skiptir rosalega miklu máli að fólk standi saman í þessu og líði ekki níð á netinu. Það hefur enginn leyfi til að birta myndir af börnum og gera lítið úr þeim. Þótt það sé hægt á netinu, er ekki þarmeð sagt að það sé í lagi.

Ég vona því að fólk sem les þetta, læri eitthvað af þessu. Ekki bara um sjúkdóminn Pfeiffer, heldur að fólk hugsi sig tvisvar um áður en það skrifar eitthvað og deilir því á netinu. Ef fólk sér einhverjar grínfærslur með myndum af börnum, skiptir engu máli hvort barnið er fatlað eða ekki. Börn eru alltaf börn, sama hver þau eru. Mér til dæmis brá í einu rifrildinu við einn netverjann, sem sagði mér að hafa ekki af þessu áhyggjur, því myndin væri ekki einu sinni alvöru, heldur fótósjoppuð.

Þannig að hafið þetta í huga. Hvaða mynd sem þið sjáið. Það er alvöru manneskja á þeirri mynd. Alveg eins og sonur minn er eins raunverulegur og hvert annað barn.”

Zetan tekur að sjálfsögðu undir hvert orð sem hér er skrifað, enda hljótum við öll að vera sammála því að það sem sumir skrifa á netinu, fer langt út fyrir öll eðlileg mörk. En eins og Alice segir:

,,Það skiptir rosalega miklu máli að fólk standi saman í þessu og líði ekki níð á netinu.\"

Eruð þið ekki sammála?

Á meðfylgjandi mynd má sjá Jameson að leik með bræðrum sínum í bakgarðinum heima fyrir.

\"\"

 Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!