Risvandamál: rauðvín og sítrónur góð áhrif á karlmenn

Allt að helmingur karlmanna, þjáist af einhverju risvandamáli þegar þeir eru komnir yfir miðjan aldur. Að sjálfsögðu er þetta rannsóknarefni eins og hvað annað og auðvitað ber þar hæst að nefna Viagra, sem afrakstur þeirrar vinnu. En fleiri ráð geta dugað og ekki alltaf víst, að karlmenn þurfi að horfa á bláu pilluna sem lausn.

Í nýjasta tímariti American Journal of Clinical Nutrition, er sagt frá rannsókn sem stóð yfir í mörg ár, eða frá árinu 1986 þar til í fyrra. Þáttakendur voru rúmlega 25 þúsund karlmenn, á miðjum aldri eða eldri. Um 36% þeirra, sögðust einhvern tíman hafa lent í risvandamáli en að sögn vísindamanna, en þó var þetta vandamál hvað minnst hjá þeim karlmönnum sem eru duglegir að neyta matar eða drykkjar, sem eru rík af flavonoids. Það er mjög öflugt andoxunarefni, sem plöntur framleiða til að vera sig gegn sníkjudýrum, bakteríum eða skemmdum á frumum. Þessi efni eru í ávöxtum, grænmeti, kryddum, fræjum, hnetum, blómum og berki en yfir 400.000 tegundir af flavonoids eru þekktar.

Það mest spennandi við nýjar niðurstöður er að fyrir karlmenn, getur það minnkað líkurnar á risvandamáli verulega, ef þeir eru til dæmis duglegir að borða jarðaber, bláber, fá sér rauðvínsglas, epli, perur eða sítrónur og þá erum við bara að tala um að þeir séu vakandi yfir því að borða einhverja skammta af þessu, nokkrum sinnum yfir vikuna. Þá segir einnig að hreyfing hafi áhrif á karlmenn hvað varðar risvandamál, því þeir karlmenn sem eru í góðu formi og æfa reglulega, eru líklegri til að eiga ekki við þetta vandamál að stríða.

Má bjóða ykkur rauðvín og sítrónu?

\"\"

Við mælum með á Hringbraut:

Fylgstu með fjölbreyttri dagskrá: Kíkt í skúrinn, Besti maturinn með Völu Matt, Kvikan með Birni Þorlákssyni, Ólafarnir, Mannamál með Sigmundi Erni, Ég bara spyr, Heilsuráð Lukku, Eywitness, Lífið með Lóu, Afsal, Okkar fólk með Helga Pétursyni, Lög og réttur, Herrahornið og fleira. Og mundu að Hringbraut er ókeypis!

\"\"

Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!