Rauðvínsglas fyrir svefninn og kílóin fjúka af

Stundum rekst Zetan á rannsóknir sem verða að flokkast undir að vera nánast of góðar til að vera sannar. Hér er dæmi um eina, sem vefsíðan Food & Wine segir frá. Þar segir að vísindamenn við háskólan í Washington hafi staðið fyrir rannsókn sem sýnir að það að fá sér rauðvínsglas fyrir svefninn, geti hjálpað fólki til að ná af sér nokkrum kílóum. Það er vegna þess að í rauðvíninu er efni sem heitir pólýfenól. Pólýfenól er öflugt andoxunarefni, sem hjálpar meðal annars við fitubrennslu. Og það sem  meira er: þetta efni brýtur sérstaklega niður hvítu fitufrumurnar og breytir þeim í æskilegri brúnar fitufrumur. Svipuð rannsókn var gerð við Harvardháskólan. Þar var úrtakið um 20 þúsund konur, sem fylgst var með á 13 ára tímabili. Niðurstöður rannsóknarinnar voru þær að konur sem drukku 2 rauðvínsglös á dag, voru 70% líklegri til að vera í kjörþyngd.

Fleiri rannsóknir hafa reyndar stuðst við sömu kenningu, þ.e. að rauðvín geti verið grennandi. Það er þá efnið resveratról, undirstaða pólýfenólsins, sem talið er geta unnið gegn fitumynduninni. Þess skal þó getið að þessar rannsóknir hafa verið umdeildar og til að mynda segir Vísindavefurinn að þessar rannsóknir eigi ekki við rök að styðjast.

En svona fyrir trúgjarna, eða ættum við kannski að segja fyrir rauðvínsunnendur, þá má lesa úr ofangreindu að rauðvínsglas fyrir svefninn gæti hjálpað til í átakinu gegn aukakílóunum.

Þeir sem mótmæla þessari aðferð hins vegar, benda eflaust á að heilbrigðara sé að ná andoxunarefnunum bara úr til dæmis skál af bláberjum eða jarðaberjum fyrir svefninn, sem auðvitað eru uppfull af svipuðum efnum. 

Skál!

\"\"

Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!