Fólk rífst um þetta, en svona á klósettrúllan að snúa!

Fólk hefur rifist um þetta, reynt að rökræða þetta, prófað sig áfram, skipt um skoðun, skrifað um þetta og jafnvel rætt málin í veislum. Um hvað er verið að tala: Jú, í hvora áttina á klósettrúllan að snúa? En ráðgátan er mögulega leyst því Zetan rakst á grein sem gefur hið endanlega svar um hvernig blessaða rúllan á að snúa. Við gerum þó ráð fyrir að hörðustu andstæðingar mótmæli þessari grein, en skoðum málin.

Spurt er: Hvort á klósettrúllan að snúa ,,fram” eða ,,að veggnum”?

\"Klósettrúlla\"

\"\"Svo eldfimt er þetta umræðuefni að á Wikipedia teljast hafa á annað hundrað manns séð ástæðu til að skrifa um málið. Sumir hafa jafnvel teiknað skýringar, sem þeir segja vísindalegar sannanir fyrir því að klósettrúllan eigi að snúa fram en rökin eru þá helst þau að með því móti sjái fólk rúlluna einfaldlega betur og noti jafnvel minni pappír en ella.  Þá hafa aðrir bent á að ef klósettrúllan snýr aftur, eigi margir í erfiðleikum með að ná sér í skeinipappír og þá ekki síst börn.

En hvað er rétt og hvað er rangt?

Sarah Richardsson er þáttastjórnandi bandaríska þáttarins Good Housekeeping. Sarah er innanhúshönnuður sjálf og þykir manna fróðust um allt það sem viðkemur góðu heimilishaldi. Hún segir svarið augljóst:

\"\"Klósettrúllan á að snúa fram!

Sarah segir auðvelt að benda bara á hótelin um allan heim. Þau skipti manna mest um klósettrúllur og þar sé hefðin sú að klósettrúllur snúi alltaf fram. Ekki eru þau að gera þetta vitlaust?

Sarah bendir til dæmis á að það væri ekki hægt að búa til fallegt brot á nýja rúllu, nema vegna þess að klósettrúllan snýr fram.

Sérfræðingurinn Michaelle Exhume hjá hreinsideild stofnunarinnar Good Housekeeping Research Institute tekur í sama streng. Hún segir engar vísindalegar rannsóknir hafa tekið á þessu með blessuðu rúlluna, en bendir á að með því að snúa rúllunni fram, þá sé minni hætta á að ónotaður pappír komist í snertingu við eitthvað, til dæmis sýkla sem eru á veggnum. Hann á nefnilega að vera alveg hreinn þegar við notum hann.

Já þar höfum við það!

Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!

\"\"Við minnum á þáttinn Afsal þar sem fasteignamálin eru rædd til hlítar. Afsal er í umsjón Rakelar Sveinsdóttur og sýndur á fimmtudagskvöldum kl.21 og kl.23, á föstudögum, á laugardagskvöldum kl.23 og á sunnudögum. Fylgstu með á Hringbraut!