Ráðgátan um hár donald trump er leyst: ræktun frá noregi!

Hver hefur ekki talað um hárið á Donald Trump? Er þetta hárkolla? Eða er hárið bara svona? Á þessu eru skiptar skoðanir.  Sumir segja um augljósa kollu að ræða á meðan aðrir segja að Trump sé bara að greiða yfir skallan. Enn aðrir segja að hann sé að reyna að fela hárígræðslu og síðan eru það þeir sem segja að hann sé að reyna að fela ljótt ör á höfði.

 En Zetan rakst á grein á Bored Panda sem segist opinbera allt sem vita þarf um hár Trump. Reyndar hefst greining á orðunum ,,Breaking news,” .... já, þetta eru hreinlega stórfréttir! Þar segir að leyndarmálið sé loks opinberað því hár Trump eigi rætur sínar að rekja til Noregs. Þar sé að finna nokkurs konar hárræktun Trump við borgina Tromsø í norður Noregi.

Hér eru nokkrar myndir máli höfundar til rökstuðnings. Hvað haldið þið?

\"\"

\"\"

Er þetta leynigarður Trump?
\"\"

Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!