Palli í júróspjalli á útvarp hringbraut

Eyjólfur Kristjánsson stýrir þættinum, Morgunstund með Eyfa, alla virka morgna milli kl. 9 og 11. Áherslan í þættinum er íslensk tónlist og því ekki fjarri lagi að taka fyrir einn vinsælasta sjónvarpsviðburð í íslensku sjónvarpi, Söngvakeppni Sjónvarpsins. 

Eyfi er einn þeirra flottu tónlistarmanna sem hafa keppt fyrir hönd Íslands í Evrópsku söngkeppninni, með ógleymanlegu lagi sínu Nína sem hann flutti ásamt Stefán Hilmarsyni árið 1991. Hann hefur síðan tekið virkan þátt í umræðunni og stemningunni hér heima síðan. Páll Óskar er að auki einn af þeim flottu tónlistarmönnum sem hafa verið fulltrúar Íslands í sömu keppni og verið áberandi og áhugasamur um gengi íslendinga.

Föstudaginn 5. febrúar, verður því sérstök júróvisjón stemning á Útvarp Hringbraut. Þar sem Eyfi og Páll Óskar spá í spilin ásamt því að vega og meta framlag íslendinga í ár.  

Ef þú ert jafn mikill júróvisjón aðdánandi eins og við á Zetunni þá viltu ekki missa af þessu kl. 9, föstudaginn 5. febrúar. 

 

Útvarp Hringbraut, fm 89.1 

Eða hlustaðu á okkur á netinu HÉR

 

Við minnum einnig á Snapchat Hringbrautar: hringbraut.is 

Þar er hægt að fylgjast með spjalli þeirra félaga bakvið tjöldin ásamt öðru skemmtilegu efni frá Hringbraut.

\"\"