,,pabbi, ég mun ekki valda þér vonbrigðum...\"

Á Íslandi minnumst við látinna ástvina með því að skrifa minningagreinar. Erlendis tíðkast það hins vegar víða, að ættingjar og vinir, halda tölu í kirkjunni og minnast þannig hins látna. Ekki er laust við að minningarræða elsta sonar Celine Dion og René Angelil, hafi snert marga strengi, þegar René var jarðsunginn í gær.

Elsti sonur þeirra hjóna heitir René-Charles, en hann verður 15 ára í næstu viku. Yngri bræður hans, eru tvíburarnir Nelson og Eddy, sem eru 5 ára. Í ræðunni sinni, sagði René-Charles meðal annars:

,,Fimmtán ár, er ekki langur tími fyrir son að kynnast föður sínum. Þú varst oft upptekinn, en við náðum samt saman í gegnum áhugamál eins og golf, hokkí, póker og reykt kjöt..... svo ekki sé talað um annan yndislegan mat. Tengdumst alltaf meira og meira, eftir því sem tíminn leið.

Þú hefur því kvatt mig með fangið fullt af góðum minningum, sem ég get deilt með yngri bræðrum mínum. Þar sem þú verður ekki til staðar þegar þeir eldast, skal ég lofa því að halda minningu þinni á lofti, með því að kenna þeim allt það sem þú náðir að kenna mér.

Það verður erfitt að standa undir þeirri fyrirmynd sem þú varst, en allt sem þú hefur skilið eftir þig, mun hjálpa.

Pabbi, ég lofa þér hér og nú, að ég mun ekki valda þér vonbrigðum.”

Í útför René Angelil, voru nokkur hundruð gestir. Kistulagningin hans fór fram við opna athöfn síðastliðinn fimmtudag, en útförin sjálf í gær, föstudag. Fleiri myndir má sjá í áðurbirtri grein Zetunnar, sjá HÉR.

\"\"

People

Við mælum með á Hringbraut:

Fylgstu með fjölbreyttri dagskrá Hringbrautar: Kíkt í skúrinn, Besti maturinn með Völu Matt, Kvikan með Birni Þorlákssyni, Ólafarnir, Mannamál með Sigmundi Erni, Ég bara spyr, Heilsuráð Lukku, Eywitness, Lífið með Lóu, Afsal, Okkar fólk með Helga Pétursyni, Lög og réttur, Herrahornið og fleira. Og mundu að Hringbraut er ókeypis!

\"\"

Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!