Pabbaráð: 3 markmið fyrir árið 2016

Ein af vinsælustu greinunum á vefsíðunni Upworthy um áramótin, var grein sem maður að nafni Doyin Richards skrifaði, en hann er tveggja barna faðir. Börnin hans eru dætur á aldrinum tveggja og fjögurra ára. Doyin segir í greininni, að hann hafi vaknað upp klukkan 02.45 eina nóttina og átt erfitt með að sofna aftur. Það var þó ekki vegna þess að hann varð andvaka, heldur hafði önnur dóttir hans vakið hann, var tilbúin í smá spjall en þegar hún var loksins sofnuð aftur, var Doyin sjálfur auðvitað glaðvaknaður! En..., eins og Doyin segir: Svona nætur fylgja auðvitað foreldrahlutverkinu og sjálfur ákvað Doyin að setja sér 3 markmið sem áramótaheitin sín fyrir árið 2016.

Zetan dró þau saman í lauslegri þýðingu:

1. Að njóta samverunnar með börnunum.

Ég ætla mér að hægja aðeins á mér og verja meiri tíma með börnunum, hvort sem það eru skemmtilegar eða ekki eins skemmtilegar stundir. Aðalmálið er að þetta eru stundir sem koma ekki aftur. 

2. Ég ætla að hugsa vel um sjálfan mig.

Þetta hlýtur að haldast í hendur við allt annað og vera svipað og í flugvélum: Fyrst setur þú grímuna á sjálfan þig og síðan börnin. Með því að hugsa vel um sjálfan mig, er ég betur í stakk búin til að standa mig sem foreldri.

3. Er ekki fullkomið foreldri, en get gert mitt besta.

Fyrir stuttu sturtaði önnur dóttir mín sokk niður um klósettið. Ástæðan var sú að ég hafði stuttu fyrr sagt henni, að niður um klósettið ætti bara einhver skítur að fara. Sumsé: Ég hefði mátt skýra hlutverk klósettsins út. Stundum fylgir líka foreldrahlutverkinu eitthvað sem er alls ekkert skemmtilegt, en hey: það skiptir engu máli þótt maður sé ekki 100% fullkomið foreldri eða allt sé yndislegt, aðalmarkmiðið mitt bara að gera mitt besta!

Eflaust markmið sem flestir foreldrar geta tekið undir! Hér má sjá mynd af greinahöfundi, ásamt eiginkonu og dætrum.

\"\"

Við mælum með á Hringbraut:

Ekki missa af Sigmundi Erni í Herrahorninu: Áhugaverðir þættir fyrir alla karlmenn sem vilja girða sig almennilega í brók og líta út fyrir að vera fágaðir, flottir á því og virkilega móðins. Á dagskrá kl.21.15 á mánudagskvöld.

\"\"

Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!