Ótrúlega flott dúkkuhús: sjáið húsmunina og fylgihluti (meira að segja sushi!)

Zetan rakst á ótrúlega flottar myndir á vefsíðunni Brightside, þar sem búið er að taka saman myndir af handgerðum dúkkuhúsum sem hafa verið búin til hér og þar í heiminum. Sum húsanna, eru eftirlíkingar af einhverju sem við þekkjum. Dæmi um það eru til dæmis húsakynni Hobbitans og Downton Abbey.

En það má alveg benda á fleira. Húsgögnin og innanhúsmunir í húsunum eru ótrúlega flott. Jafnvel sushi bakkar í boði, málverk á veggjum og fleira sem maður varla trúir að hafi verið hægt að gera svona vel.

Sjón er sögu ríkari.

#1. Heimkynni Hobbita.

\"\"

Sjáið til dæmis það sem liggur á skrifborðinu.

\"\"

#2. Windsor kastali.

Eftirlíkingin af Windsor kastala bresku konungsfjölskyldunnar er hreint út sagt ótrúlega flott. Hér má sjá málverk á veggjum og borðstofuborð, þar sem búið er að leggja á borð.

\"\"

Ekki er nóg með að í kastalanum séu til dæmis hillur fullar af bókum....

\"\"

....heldur er líka búið að skrifa í bækurnar.

\"\"

Sykurkar, lampi á náttborði og bók, leirtau og fleira. Hugað er að hverju smáatriði.

\"\"

Hér er vert að benda á smáatriðin sem felast í handriðinu eða málaðan vegginn fyrir ofan stigan. Sjáið líka munstrið í speglarammanum eða smáatriðin í luktinni í loftinu.

\"\"

#3. Hér eru síðan japönsk dúkkuhús og Zetan féll sérstaklega fyrir innanstokksmununum. Núðlur og sushi?

\"\"

\"\"

\"\"

#4. Síðan er það umhverfisvæna húsið. Það lítur kannski öðruvísi út en heimili sem við eigum að venjast, en hér er öll áhersla lögð á að heimili og húsgögn séu vistvæn.

\"\"

\"\"

#5. Loks er það eftirlíking af vinnustofu listakonunnar Fridu Kahlos. Hún var frá Mexíkó en konan sem bjó til þetta dúkkuhús, ásamt fylgihlutum, býr í Kaliforníu. Konan gaf dóttur sinni dúkkuhúsið að gjöf, því hún vildi segja henni frá því hversu eftirminnanleg og áhrifarík listakona Frida Kahlos hefði verið.

\"\"

\"\"

\"\"

Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!