Ótrúlega fallegt: tók skyndilega ákvörðun og lét raka af sér allt hárið!

Ung kona birti nýverið mynd af sér á instagram síðuna sína þar sem hún var búin að raka allt hárið af. Ástæðan er ótrúlega falleg saga. Þegar hún mætti á hárgreiðslustofuna tók hún þá skyndilegu ákvörðun að taka allt hárið af. Við á Zetunni höfum þýtt textan yfir á íslensku og leyfum henni að fá orðið. 

 

Í dag hringdi ég mig inn veika í vinnuna á síðustu stundu, hef verið mjög veik. Ég var einnig í mikil þörf að snyrta endana á hárinu svo mig datt í hug að skjótast inn á hárgreiðslustofu í stutta stund eftir að hafa skutlað litlu systur minni fyrir pabba. Þegar ég geng inn á hárgreiðslustofuna sé ég litla stelpu með FALLEGT ljóst sítt hár ásamt mömmu sinni, litla stúlkan var grátandi og mamma hennar líka. Ég sat í stólnum við hliðin á þeim og áður en hárþvotturinn minn byrjar heyri ég útundan mér mömmuna segja við dóttur sína, \"engar áhyggjur hárið mun vaxa aftur eftir lyfjameðferðina\". Fannst þetta svo sárt að heyra að ég fór til þeirra og kynnti mig, hún hét Rachel og var átta ára gömul með þriðja stigs krabbamein, heilaæxli í hægrahveli heilans. Hún var svo miður sín yfir því að fara missa allt hárið en hrósaði síðan mínu. Svo ég settist hjá henni og sagði \"hár er ofmetið, gerum þetta saman, hárið vex aftur\". Ég sá hana hlæja þegar hárið mitt var rakað af því ég lét þau stoppa í miðju verki svo ég liti asnalega út. Ég hef aldrei verið jafn ánægð með neitt sem ég hef gert á ævi minni og sjá þessa litlu stelpu gleðjast svona þegar hún er í raun og veru að berjast við mikinn sársauka. Í sannleika sagt, þá mun hún líklega ekki lifa til 16 ára aldurs, eða 21 árs, eignast fyrsta kærasta, fyrsti dansinn o.s.fr. En ég mikla fyrir mér litlu hlutina og valdi að vera heima vegna veikinda. Ég sé ekki eftir þessari upplifun, ég meina þetta er hár. Ég gæti því kallað mig í dag G.I Jane... og einnig í dag keypti ég mér mína fyrstu hárkollu. 

 

\"\"

Falleg saga sem segir okkur svo sannarlega hvað við eigum að vera þakklát fyrir lífið og njóta hverra stundar. 

 

Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!