Ótrúlega einfalt: svona getur þú geymt opið kampavín!

Það vill helst enginn leifa kampavín. Nei, kampavín drögum við fram þegar stærstu tilefni þykja til, eitthvað sem er virkilega þess virði að skála fyrir! En stundum gerist það þó, að eitthvað verður eftir af kampavíninu, eða kannski freyðivíninu, sem verið er að bjóða upp á.

Zetan rakst hins vegar á algjört snilldarráð!

 Það er af vefsíðunni Food52 og er alveg ótrúlega einfalt.

En við hvetjum ykkur til að prófa, því þetta virkar og miklu frekar að prófa þetta frekar en að hella niður gæðavíni sem varð afgangs.

 Það eina sem þú þarft er silfurskeið.

Silfurskeiðina setur í op flöskunnar eins og sjá má á meðfylgjandi mynd.

Og þá er það komið!

Já, það eina sem þú þarft að gera, er að setja skeiðina í flöskuna og síðan geymir þú bara flöskuna inn í ísskáp. Reyndar segist greinahöfundur Food52 ekki geyma vínið mjög lengi svona, heldur nýtur þess frekar að fá sér aðeins og aðeins í glas, næstu daga á eftir eða geymir bara í nokkra daga, þar til að það skapast tilefni til að skála við einhvern með eitt glas í hönd. 

\"\"

Við mælum með á Hringbraut:

\"\"

Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!