Oooooh..... það sem fannst undir ísskápnum var vægast sagt skelfilegt!

Húsmóðirin Adelaide, veit eins og aðrir Ástralar að það að búa úti í sveit í Ástralíu, getur auðvitað lokkað óvenjulegustu gesti að. Snákar eru til dæmis algengir en mis hættulegir. Sá snákur sem drepur flest fólk í Ástralíu á hverju ári, er tegund sem á ensku er kölluð ,,The eastern brown.” Þessi brúna snákategund er svo sem ekkert endilega mjög stór, en gefur frá sér lífshættulegt eitur.

Einn daginn, var umrædd Adelaide að fá sér eitthvað að drekka úr ísskápnum. Hún verður þá vör við að heyra eitthvað hljóð.

Hvað gat þetta nú verið? 

Var eitthvað undir ísskápnum?

\"\" 

Adelaide byrjaði á því að reyna að kanna málin sjálf, en þegar hún hafði sannfærst um að þarna væri eitthvað, brást hún þó rétt við og hafði samband við meindýraeyði. Sá er alvanur snákum og sagði Adelaide við hann að hana grunaði að það væri snákur undir ísskápnum.

Snákasérfræðingurinn heitir Rolly og fór auðvitað að kanna málin.

\"\"

\"\"

\"\"

Jú, grunur Adelaide var réttur og það sem verra var: þetta var snákur af tegundinni ,,The eastern brown.”

(ATH: SÖGUNNI LÝKUR ÞÓ EKKI HÉR!!!!!)

 \"\"

\"\"

\"\"

En sögunni er ekki enn lokið hér því litlu mátti muna að fundur Adelaide hefði getað orðið eins og skelfilegt atriði í hryllingsmynd.

Undir ísskápnum, fundust nefnilega 13-14 egg.

 \"\"

Já, ef Adelaide hefði ekki hringt í Rolly á þessum degi, er ekki ólíklegt að einn daginn hefði hún opnað ísskápinn og séð 13-14 snákakríli skríðandi út um allt!

Böööhh.... hver hefur taugar í það?

\"\"

Að sögn Rolly, yfirgefa snákamæðurnar ungana stuttu eftir fæðingu. Snákurinn sem fannst, hefði því eflaust komið sér í burtu hið fyrsta, en Adelaide setið uppi með krílin í eldhúsinu.

Þótt gæsahúðin geri auðvitað vel vart við sig með þessari sögu, er þetta þó saga sem endaði vel. Rolly tók nefnilega bæði snákinn og egginn og í stað þess að drepa ísskápssnákinn umrædda, hlúði hann að honum og sagði að náttúran fengi að hafa sinn gang með bæði snákamóður og unga.

\"\"

Við mælum með á Hringbraut:

Fylgstu með fjölbreyttri dagskrá Hringbrautar: Kíkt í skúrinn, Besti maturinn með Völu Matt, Kvikan með Birni Þorlákssyni, Ólafarnir, Mannamál með Sigmundi Erni, Ég bara spyr, Heilsuráð Lukku, Eywitness, Lífið með Lóu, Afsal, Atvinnulífið, Herrahornið og fleira. Og mundu að Hringbraut er ókeypis!

\"\"

Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!