Nýtt rifrildi á netinu: í hvaða litum er þessi jakki?

Það er um það bil eitt ár síðan það varð allt vitlaust á netinu, vegna rifrildis um lit á kjól, sem sumir vildu meina að væri blár og svartur, en aðrir vildu meina að væri hvítur og gylltur. Svo mikið reifst fólk um þetta á netinu, að taugasérfræðingar voru kallaðir til, til að skýra það út hvers vegna við ættum það til að sjá og túlka liti á mismunandi hátt.

\"\"Nú er komið upp annað rifrildi á netinu. Í þetta sinn er flíkin Adidas jakki. Sumir vilja meina að hann sé svartur og brúnn, en aðrir vilja meina að hann sé hvítur og blár. Þá eru enn aðrir á netinu sem vilja meina að jakkinn fari út í grænan blæ. Buzzfeed hefur brugðið á það ráð að gera könnun á netinu, þar sem fólk er spurt  jakkinn sé í eftirfarandi litum:

  1. Blár og hvítur
  2. Svartur og brúnn
  3. Grænn og gylltur
  4. Grænn og brúnn
  5. Eða bara guð minn góður, ekki aftur!

Á vefsíðunni Hellogiggles, telur blaðamaðurinn að jakkinn sé BLÁR og HVÍTUR og biður fólk því ekki um að byrja að rífast strax. Niðurstöður lesenda Buzzfeed eru hins vegar á þá leið að flestir sjá jakkan sem brúnan og svartan á lit.

Í hvaða lit segir þú að jakkinn sé?

Zetan minnir á að þegar kjólarifrildið hófst í fyrra, fannst sumum eins og litir kjólsins væru ekkert álitamál og hann væri hvítur og gylltur. En kjóllinn varð að miklu hitamáli og því spurning um hvort stóra jakkamálið sé í uppsiglingu?

Hér að neðan má sjá niðurstöður könnunar Buzzfeed, eins og þær birtast þegar þessi grein er skrifuð. Tugir þúsunda lesenda Buzzfeed hafa tekið þátt nú þegar.

\"\"

Viltu vinna þér inn 200 þúsund króna inneign hjá iKORT?

SKRÁÐU NETFANGIÐ ÞITT HÉR!

Spyr.is er í samstarfi við Tölvísi um kannanir sem fólk getur tekið þátt í og fengið greitt fyrir. Með skráningu í viðhorfshóp Tölvísi er möguleiki á að vinna sér inn 200 þúsund króna inneign hjá iKort en dregið verður úr nýjum meðlimum  í lok mars. Tölvísi er hluti af alþjóðlegu umsjónarkerfi viðhorfahópa að nafni Cint sem hefur höfuðstöðvar í Stokkhólmi. Cint hefur umsjón með yfir 1.500 viðhorfahópum með alls 19 milljónum meðlima í yfir 65 löndum. Þátttakendur fá greitt fyrir að svara könnunum. Skráðu netfangið þitt með því að smella HÉR.