Gunnar hansson leikari væri tilvalinn í rannsóknarlögregluna

Þátturinn Bankað uppá á sjónvarpstöðinni Hringbraut hefur vakið mikla lukku. Þáttastjórnandinn Sirrý Arnardóttir fer með gestum og áhorfendum inná heimili þekktra Íslendinga. Í þættinum í kvöld er gestur þáttarins leikarinn Gunnar Hansson sem stóð sig ótrúlega vel og gæti talist gott efni í rannsóknarlögregluna, því spennandi og skemmtilegur þáttur framundan í þættinum í kvöld. 

Þátturinn byggist á því að rýna í þann persónuleika sem á heimilið sem er heimsótt, margar vísbendingar ef vel er gáð um hvernig persónu við höfum að geyma og okkar áhugasvið. Áhorfendur fá því tækifæri til að kynnast þjóðþekktum einstaklingum betur og kynnast nýjum hliðum. Það getur nefnilega verið svo algengt hvað fólk er duglegt að mynda sér skoðun fyrirfram. 

Blaðamaður settist niður með Sirrý og fékk hana til að segja betur frá þættinum.

Sirrý nefnir sérstaklega hvað henni þykir æðislegt hvernig fólk er tilbúið til að opna sig og bjóða áhorfendum inn á sitt heimili. Kíkt er í fataskápa heimilanna, bakaraofna. Svona þáttur krefst mikils undirbúnings sem er ekki síður skemmtilegt verkefni. Hún nefnir einnig hversu mörgum gestum þáttanna fannst erfitt að rýna í vísbendingar heimilisins eða giska á réttan aðila, sem áhorfendur fá að taka þátt í og með því magnast spennan við áhorfið. 

Nálgun þáttarins má telja skemmtilega viðbót í íslensku sjónvarpi en hugmyndin er unnin út frá innslagi sem Sirrý var með eigin þætti, Fólk með Sirrý þegar þátturinn var sýndur á Skjáeinum fyrir um tíu árum síðan. Það vakti mikla lukku á sínum tíma og var áhugavert að sjá hvort fólk til dæmis flokkaði eða ekki. Einnig má finna tengingu við þáttinn Who lives here? hún setur þó sinn svip á þáttinn og bætir til að mynda við hlutum inn á heimilin þar sem gestir þáttarins eiga að átta sig á hvort að eigi við heimilið eða ekki. 

 \"\"

 \"\"

 

Fylgist því vel með þættinum í kvöld á Hringbraut kl. 21:30 og aftur kl. 23:30