Nýr leikari sem ,,jack” í 24?

Fjölmiðlarisinn Fox tilkynnti í dag að ný sjónvarpssería af þáttunum 24 er í undirbúningi. Svokallaðir ,,pilot” þættir eru í vinnslu, en það eru prufuþættir sem eru metnir áður en frekari framleiðsla er ákveðin. Eins og allir vita, hefur Keith Sutherland verið í hlutverki Jack Bauer í þáttunum. Snillingsins sem auðvitað leysir öll mál innan 24 klukkustunda. Í tilkynningu Fox er sagt að nýja serían verði af allt öðru meiði en verið hefur og ætlunin sé að virkja vinsældir þáttanna á ný. \"\"Aðalleikari verður ekki Keith Sutherland en þó ert gert að því skónna að hann komi hugsanlega fram sem gestaleikari. Zetan hefur þó rekist á einhverjar fréttir ytra, þar sem talsmenn segja ,,never say never,” þegar spurt er um Sutherland og Jack.

Samkvæmt þeim upplýsingum sem Fox hefur gefið út um nýju seríuna, er hugmyndin að hún verða 12 þátta röð eins og verið hefur og byggi á stærstu hryðjuverkaógn sem Bandaríkin hafi nokkru sinni staðið frammi fyrir. Er því fleygt fram að til skoðunar sé að nýja hetjan, sem væri þá hinn nýi ,,Jack” þáttanna, sé svartur leikari. Hörðustu aðdáendur þáttanna vilja þó trúa því að hinn eini sanni Jack Bauer, leikinn af Keith Sutherland, muni rísa upp frá dauðum og halda áfram eins og ekkert hafi í skorist.

Tja..., annað eins hefur nú gerst í sjónvarpi....

Við mælum með á Hringbraut:

Fylgstu með fjölbreyttri dagskrá Hringbrautar allar helgar. Kíkt í skúrinn, Besti maturinn með Völu Matt, Kvikan með Birni Þorlákssyni, Ólafarnir, Mannamál með Sigmundi Erni, Ég bara spyr, Heilsuráð Lukku, Eywitness, Lífið með Lóu, Afsal, Okkar fólk með Helga Pétursyni, Lög og réttur, Herrahornið og fleira. Og mundu að Hringbraut er ókeypis!

\"\"

Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!