Notaðu hvítlauk á sár, vörtur, psoriasis eða exem

Í Kína hefur hvítlaukur verið notaður sem forvörn og náttúrulegt lyf öldum saman. Hvítlaukurinn er bakteríudrepandi og getur virkað vel gegn til dæmis kvefi og æðakölkun. En hvítlauk má líka nota á sár, vörtur, psoriasis og exem.

Á vefsíðunni DHP eru gefin nokkur góð ráð um hvernig hægt er að nota hvítlauk. Mælt er með því að fyrst prófi fólk að nudda smá hvítlauk á húðina, til að athuga hvort líkaminn bregðist nokkuð við með ofnæmisviðbrögðum. Ef ekki, er upplagt að prófa sig áfram með hvítlauk.

\"\"#1. Settu hvítlaukinn í plásturinn eða sárabindið.

Hvítlaukur getur hjálpað til við að græða sár og er bakteríudrepandi. Gott er að setja smá hvítlauk í plásturinn eða í sárabindið og binda síðan fyrir sárið. Skipta um daglega, þar til sárið er gróið.

#2. Hvítlaukur í olíu á vörtur.

Hvítlaukur getur virkað vel á vörtur ef honum er blandað í smá ólífuolíu eða kókosolíu og olíunni síðan nuddað á vörtuna. Endurtekið í 3-4 vikur, en ný olía gerð daglega.

#3. Heimagerð hvítlauksolía á Psoriasis eða exem.

Mjög svipuð aðferð virkar vel á psoriasis og exem en þá er hvítlaukurinn látinn liggja í ólífuolíu eða kókosolíu í 24-48 klukkustundur. Í staðinn fyrir að nudda olíunni á tiltekin húðsvæði, er olían borin á psoriasis eða exemið og síðan lokað fyrir með plástri eða klút.

\"\"

Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!