,,ég nenni ekki að hlusta á allar þessa neikvæðu fréttir"

Ég þurfti að snattast hitt og þetta þennan dag. Veðrið var gott og ég söng með tónlistinni í bílnum. Þetta var lag sem ég þekkti og mér fannst það hæfa stemningu dagsins. En síðan gerðist auðvitað það sem gerist alltaf: Tónlistinni lauk og næst voru það fréttir. Ég hélt áfram að keyra og hlustaði. Bensínverðið var að hækka og það voru alls kyns vangaveltur um þróun hlutabréfamarkaða. Meiri hiti var kominn í forsetakosningarnar, einhvers staðar voru mótmæli út af einhverju og sitthvað fleira fylgdi.

Loks slökkti ég bara á útvarpinu.

Þögnin var betri en þetta endalausa væl í fréttum. Ef það er ekki væl, þá er það alla vega eitthvað sem einhverjum finnst ómögulegt. Eða fréttir um eitthvað skelfilegt.

Ég var komin niður í bæ og byrjaður að svipast um eftir stæði. Horfði um leið á fólkið allt um kring. Sá stæltan og myndarlegan mann vera að hjálpa eldri konu. Sá konu í litlum garði vera að gefa fuglunum (og þeir greinilega hæstánægðir með það!). Ungur maður gekk með litla dóttur sína í fanginu. Þau spjölluðu saman og hann kitlaði hana. Síðan fóru þau bæði að hlæja.

Og ég brosti líka út í annað.

Já, ég var svo sem búinn að slökkva á útvarpinu í bílnum en í hjarta mínu var ég ánægður og sæll með lífið, rétt eins og þegar góða lagið glumdi í tækinu og ég söng með. Það eina sem ég þurfti að gera var að slökkva á fréttunum. Hlusta ekki á þær.

Horfa frekar á allt það jákvæða í kringum mig. Því það er þarna. Í rauninni þarftu ekki annað en að fylgjast með í smá stund, þá sérðu hvað það er margt jákvætt allt í kring. Eitthvað sem minnir þig á að fólk er upp til hópa gott. Sýnir hvert öðru kærleik og hlýju. Ef ekki hvert öðru, þá smáfólkinu eða dýrunum.
Ég ákvað því að halda áfram að njóta dagsins og njóta lífsins.

Með slökkt á öllum fréttatímum.

Byggt á pistli Joseph Mazzella ,,May Your Only Competition Be With Yourself.\" Þótt pistillinn virðist geta átt við daginn í dag, var hann þó birtur á vefsíðunni Sunny Skyz, í apríl árið 2012.

\"\"

Við mælum með á Hringbraut:

Fylgstu með fjölbreyttri dagskrá Hringbrautar: Kíkt í skúrinn, Besti maturinn með Völu Matt, Kvikan með Birni Þorlákssyni, Ólafarnir, Mannamál með Sigmundi Erni, Ég bara spyr, Heilsuráð Lukku, Eywitness, Lífið með Lóu, Afsal, Okkar fólk með Helga Pétursyni, Lög og réttur, Herrahornið og fleira. Og mundu að Hringbraut er ókeypis!

\"\"

Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!