Missti 86 kíló á 11 mánuðum – myndir!

Hún er 25 ára og vakti athygli í fjölmiðlum í fyrrasumar, þegar hún hafði misst 86 kíló á aðaeins 11 mánuðum. Sú sem um ræðir heitir Simone Anderson Pretscherer og býr í Auckland á Nýja Sjálandi. Simone var 169 kíló. Á tæpu ári, missti hún ríflega helming líkamsþyngdar sinnar því á aðeins 11 mánuðum, fór hún niður í 83 kíló.

Simone starfar sem barnfóstra og förðunarfræðingur. Hún segir þetta tímabil breytinga hafa verið eins og ferðarlag. Nú hefur hún ákveðið að nýta sína reynslu fyrir aðra og stofnaði vefsíðu sem heitir ,,Journey to health.” Vefsíðuna segir hún ekki vera síðu til að afla sér tekna, heldur til að vera samskiptasíða fyrir fólk sem er í sömu stöðu og hún var í.

\"\"

Í dag hefur Simone misst alls 92 kíló. Eins og gefur að skilja, fylgir þessu mikið af lausri húð. Simone hefur ekki verið feimin við að birta myndir af lausu húðinni. Í viðtali við NZHerald sagði hún:

,,Ég hef birt þessar myndir því þetta er hinn raunverulegi sannleikur sem fylgir því að léttast mjög mikið.”

\"\"

Á Facebook og Instagram fylgja Simone nú yfir 250 þúsund manns, en sjálf segir Simone að átak eins og hún hafi farið í, þurfi hvorki að vera leiðinlegt né dýrt:

,,Það er fullt af ferskum og skemmtilegum uppskriftum á síðunni. Átak þarf ekki að vera leiðinlegt, það er mikilvægt að það komi fram. Það þarf heldur ekki að vera dýrt.” 

Simone fór í aðgerð til að losa sig við lausu húðina og er í dag 77 kíló. Aðspurð um hvernig henni finnist það vera að fólk líti upp til hennar alls staðar af í heiminum, segir hún:

,,Ég upplifi mig ekkert þannig, allt sem ég hef gert er eitthvað sem ég hef gert fyrir sjálfan mig.... En ef ég hef mögulega breytt einhverju fyrir eina manneskju einhvers staðar, þá er það eitthvað sem ég er verulega stolt af.”

\"\"

\"\"

Hægt er að fylgjast með Simone á vefsíðunni með því að smella HÉR en hér eru nokkrar nýjar myndir af Simone af Facebook.

 \"\"

\"\"

\"\"

\"\"

\"\"

Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!