Minnsti fyrirburi í heimi útskrifast og fer heim! (myndir)

Hún er sögð minnsti fyrirburi sem hefur fæðst og lifað af, enda vóg hún aðeins 283 grömm þegar hún kom í heiminn. Hún heitir E’Layah Faith Pergues og fæddist í Norður Kaliforníu. E’Layah fæddist 14 vikum fyrir tíman og var svo lítil þegar hún fæddist, að læknarnir voru hreinlega ekki vissir um, hvernig væri \"\"best að fæða hana fyrstu dagana sem hún lifði. Úr varð að E’Layah fékk sérstaka blöndu af móðurmjólk og formúlumjólk, en meginmarkmiðið var auðvitað að hún næði að stækka og þroskast sem mest fyrstu vikurnar.

Læknarnir á Carolinas Medical Center, telja að E’Layah sé minnsti fyrirburinn sem fæðst hefur og lifað af. Hún hefur dafnað mjög vel síðustu vikurnar og er nú orðin 5 mánaða! Í dag vegur hún tæplega 2,5 kíló og hefur því náð áttfaldri fæðingarþyngd sinni.

Foreldrarnir kalla hana kraftaverkabarnið og segja hana ótrúlega hrausta.

,,Hún er mjög upptekin lítil dama, alltaf að grípa um eitthvað eða reyna að toga til sín,” sagði móðir E’Layah við fréttastofu ABS þegar fjölskyldan hélt heim á leið í vikunni sem leið.

\"\"

\"\"

\"\"

\"\"

Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!