Michael jackson vildi ekki hvítan leikara

Síðustu daga hafa fjölmiðlar um allan heim, sagt frá því að leikarinn Joseph Fiennes muni leika Michael Jackson í mynd sem á að gera um ferð Elízabeth Taylor, Michael Jackson og Marlon Brando, þegar þau ferðust frá Los Angeles til New York, eftir hryðjuverkaárásirnar á Bandaríkin þann 11.september árið 2001. CNN rifjar hins vegar upp viðtal í dag, við poppgoðið sjálft, þar sem Michael Jackson segist aldrei muni vilja að hvítur leikari muni leika sig í mynd.

Viðtalið sem CNN vísar í, var tekið upp árið 1993. Þá var Jackson í viðtali hjá Opruh Winfrey. Á þeim tíma, voru sögusagnir um að Pepsi væri að taka í prufur hvíta leikara, til að leika Michael Jackson í auglýsingu. Um þetta sagði Jackson í Opruhþættinum:

,,Það er alveg fáránlega vitlaust. Í rauninni fáránlegasta og skelfilegasta saga sem ég hef heyrt. Svo klikkuð hugmynd.”

Jackson bætir síðan við:

,,Hvers vegna ætti líka hvítur leikari að vilja leika mig? Ég er svartur. Og ég er stoltur af því. Ég er stoltur af litarhætti mínum. Ég er stoltur af því hver ég er.”

Hér er viðtalið í heild sinni frá árinu 1993. Þið sjáið umrætt brot úr viðtalinu, þegar það hefur spilast í 23:59 mínútur.

Við mælum með á Hringbraut:

Fylgstu með fjölbreyttri dagskrá Hringbrautar: Kíkt í skúrinn, Besti maturinn með Völu Matt, Kvikan með Birni Þorlákssyni, Ólafarnir, Mannamál með Sigmundi Erni, Ég bara spyr, Heilsuráð Lukku, Eywitness, Lífið með Lóu, Afsal, Okkar fólk með Helga Pétursyni, Lög og réttur, Herrahornið og fleira. Og mundu að Hringbraut er ókeypis!

\"\"

Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!