Mamman laumaðist í erótíska myndatöku

Ætli ég teljist ekki ,,miðlungs” í stærð og þyngd. Brjóst og rass auðvitað ekki nálægt eins stinn og þau voru hér eitt sinn, maginn ber merki þess að hafa borið og fætt börn og reyndar eru sum magaslitin þannig að þau ná eiginlega aftur að baki. Ég lyfti því brúnum þegar vinkona mín sagðist hafa látið taka af sér ,,erótískar” myndir í tilefni af fertugsafmælinu sínu. Varð hissa en dáðist að henni um leið. Hún er ekkert ósvipuð mér sjálfri þannig að ég hugsaði ,,vá, hvernig þorði hún þessu?”

En hana sagðist alltaf hafa langað til að prófa þetta og auðvitað væri fertugsafmælið ekkert annað en ábending um að hún yrði ekkert ,,yngri.” Hún sagði að myndirnar hefðu heppnast frábærlega og hún hefði eiginlega ekki trúað því að þær gætu komið svona vel út. ,,En ljósmyndarinn er kona og mér fannst ég bæði örugg og geta leikið mér að vera svolítið sexý.”

Þvílíkt sjálfsöryggi!

Þið þekkið þetta nefnilega flestar. Við höfum svo margar verið meðvitaðar um líkaman frá því að við vorum unglingar. Finnst eitthvað vera of lítið, of stórt eða ekki nógu fallegt. Ég var tágrönn um tvítugt en fannst ég samt ekki alveg nógu flott. Um þrítugt hafði ég þyngst um 20 kíló og orðin tveggja barna móðir. Í dag skil ég ekki hvernig ég gat EKKI verið ánægð með mig 25 ára eða svo!

En síðan hugsaði ég með mér:

,,Hvers vegna ekki ég?

 Ætti ég?

 Ég meina, hvað gæti svo sem gerst?\"

 Ég var forvitin og fann að mig langaði svolítið til að prófa. Þetta var klárlega eitthvað sem kallaðist ,,út fyrir þægindaramman.” Ég laumaðist til að panta mér tíma hjá ljósmyndaranum en sagði auðvitað engum frá. Hvers vegna ekki að taka nokkrar myndir, bara svona fyrir mig að sjá og enginn þyrfti að vita neitt?!

Þegar dagurinn rann síðan upp var ég viti mínu fjær af hræðslu. Í hvað var ég búin að koma mér í? Ég gat ekki einu sinni borðað en fór loks að slappa aðeins af þegar förðunardaman fór að dekra við mig. Þegar hún hafði lokið vinnu sinni, horfði ég í spegilinn og hugsaði: ,,Ég er nú bara nokkuð flott!\"  

Rétt eins og vinkonan mín hafði sagt, hafði ljósmyndarinn einstakt lag á að láta manni líða vel og slappa vel af. Stúdeóið var eins og stórt hjónaherbergi, stórt rúm fyrir miðju og svalarhurð og gluggar á annarri hliðinni. Ég hafði valið fallegustu undirfötin mín og tók með mér sitthvort parið af háum hælum. Aðstoðarmaður ljósmyndarans var líka kona og þær sögðu mér til: ,,Stattu svona, snúðu þér svona, horfðu þangað....\"

Ég var ánægð með sjálfan mig þegar ég yfirgaf staðinn og tók af mér fölsku augnahárin. Þetta hafði mér tekist að gera og ég fann fiðring í maganum þegar ég hugsaði til þess að fá myndirnar. En auðvitað sagði ég hvorki eiginmanninum né unglingunum heima frá. Þau myndu halda að ég hefði misst vitið.

Þegar ég síðan fékk myndirnar, langaði mig sjálfri helst til að gráta: Var þetta virkilega ég?

Þær voru ótrúlega flottar og varla að ég tryði því að konan á myndinni væri ég sjálf. Auðvitað fór þetta þannig að ég trúði eiginmanninum fyrir uppátækinu og sýndi honum myndirnar. Þá sagði hann: 

 ,,Ég er bara ánægður með að þú sért loksins að sjá sjálfan þig, eins og ég hef alltaf séð þig. Svo flotta.”

Ég fann tárin þrýstast fram og roðinn hljóp fram í kinnar. Þetta var klárlega setningin sem sannfærði mig um að ég hefði bara gert sjálfri mér mjög gott með að hafa farið.

ps. Hér er ein myndanna minna og já ég veit það: Hún er ótrúlega flott!

\"\"

 Höf: Scarlett Ballantyne, Scarymommy.com

Við mælum með á Hringbraut:

\"\"

Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!