Mætti með hálft tonn af peningum!

Það er auðvitað víðast hvar eins og hér, að reiðufé er nánast horfið úr öllum almennum viðskiptum. Þetta á þó ekki við um sjoppueiganda í Kína sem keypti sér nýjan pallbíl á dögunum. Hann mætti með peninginn á sér og viti menn: Þeir vógu um hálft tonn!

Já, kaupandinn greiddi fyrir nýja bílinn með reiðufé. Starfsmönnum bílasölunnar var að vonum brugðið, en að sögn vefsíðunnar Mashable, tók það um 10 klukkustundir að telja peninginn. Upphæðin reyndist rétt, en alls voru þetta 13 starfsmenn sem unnu að því að telja.

Peningunum hafði kaupandinn pakkað inn og því ljóst að hann hafði sparað fyrir nýja bílnum í dágóðan tíma.  

Spurning hvað skatturinn hér heima myndi segja, ef svona frétt rataði á síður fjölmiðlanna hér?

\"\"

\"\"

\"\"

\"\"

Við mælum með:

Fylgstu með fjölbreyttri dagskrá Hringbrautar. Kíkt í skúrinn, Besti maturinn með Völu Matt, Kvikan með Birni Þorlákssyni, Ólafarnir, Mannamál með Sigmundi Erni, Ég bara spyr, Heilsuráð Lukku, Eywitness, Lífið með Lóu, Afsal, Okkar fólk með Helga Pétursyni, Lög og réttur, Herrahornið og fleira. Og mundu að Hringbraut er ókeypis!

\"\"

Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!