Mætti í sína eigin jarðaför og eiginmaðurinn fékk sjokk!!!

Að lesa sögu Noelu Rukondo má líkja við sögþráð úr bíómynd. Einhvers konar spennumynd frá Hollywood. En sagan hennar er engin bíómynd, heldur sönn saga sem gerðist fyrir ekki svo löngu síðan. Rukondo sagði BBC sögu sína og við stiklum hér á stóru.

Jarðaförin.

Þann 22.febrúar í fyrra, mætti eiginmaður Rukondo, Balenga Kalala, í jarðaför eiginkonu sinnar sálugu. Rukondo var sögð hafa látist í bílslysi og í jarðaförina mætti Kalala með börnum þeirra hjóna og helstu vinum og vandamönnum. 

Fólk grét.

Úr fjarlægð, fylgdist Rukondo samt með. Hún sat í bíl og var langt frá því að vera látin. Úr bílnum sá hún börnin sín og nánustu vandamenn ganga niðurlút frá kirkjugarðinum. En Rukondo beið. Hún var að bíða eftir einum manni sérstaklega.

Manninum sínum!

Og þegar hann kom loksins, hinn syrgjandi ekkill, nýbúinn að jarðsyngja konuna sína.... steig Rukondo út úr bílnum.

Kalala fékk sjokk.

,,Já ertu hissa? Ég er á lífi” sagði Rukondo við Kalala.

Kalala varð orðlaus. 

\"\"\"\"

Saga Rukondo og Kalala.

Þau kynntust árið 2004. Bæði eru frá Afríku en höfðu flutt til Ástralíu og það var þar sem þau felldu hugi saman. Kalala og Rukondo voru flóttamenn frá Kongó.

Eftir að Rukondo og Kalala tóku saman, fluttu þau fljótlega í eitt af úthverfum Melbourne þar sem þau komu sér vel fyrir. Fjölskyldan var stór, því næstu árin á eftir eignuðust hjónin þrjú börn saman, en fyrir átti Rukondo fimm börn með fyrrum eiginmanni sínum. 

\"\"

Örlagastund Rukondo.

Í byrjun febrúar í fyrra, þurfti Rukondo síðan að fljúga til Afríku. Stjúpmóðir hennar var látin og Rukondo flaug heim til að vera við jarðaförina. Stjúpmóðirin bjó í Burundi, sem er í austurhluta Afríku. Rukondo syrgði stjúpmóður sína, því hún hafði reynst henni vel í gegnum tíðina og þær höfðu alltaf verið nánar.

En Rukondo náði aldrei að mæta í jarðaförina.

Þegar hún hafði bókað sig inn á hótel og var komin upp í herbergi, spjallaði hún við mann sinn í síman. Hann hvatti hana til að fara út og fá sér frískt loft. Hún var þreytt og sorgmædd og fannst þetta góð hugmynd. Að fara aðeins út myndi gera henni gott.

En þar sem Rukondo stóð fyrir utan hótelið og dró að sér andan, kom maður upp að henni með byssu og sagði henni að láta ekkert í sér heyra, hann myndi þá drepa hana. Maðurinn ýtti henni inn í bifreið þar sem tveir menn voru fyrir. Þeir bundu fyrir augu hennar og keyrðu af stað.

Um það bil hálftíma síðar eða svo, stöðvaðist bíllinn og mennirnir fóru með Rukondo inn hrörlegt húsnæði. Rukondo skalf af hræðslu. 

Hvað ætluðu þeir að gera við hana?

Þetta var eins og hin versta martröð og Rukondo óttaðist um líf sitt.

\"\"

En á þessu augnabliki vissi hún þó ekki, að kannski var það versta eftir:

,,Hvað gerðir þú eiginlega þessum manni?”

...spurði einn mannræningjanna. Rukondo lyfti brúnum: ,,Hverjum?”

,,Nú manninum þínum.”

\"\"

Það leið næstum því yfir Rukondo. Hvað meinti maðurinn? Hvernig gat Kalala tengst þessu? Var þetta allt á misskilningi byggt?

En nei. Nokkrum mínútum síðar, hringdu mennirnir í yfirmanninn, ,,bossinn” var í símanum. Rukondo heyrði einn mannræningjann tala við annan mann í síman og eftir smá stund, lét mannræninginn símtalið á hátalara:

,,Drepið hana,” heyrði hún mann sinn segja.

Rukondo hélt hún myndi deyja á þessu augnabliki. Allt hringsnerist í höfðinu og hún fór í gegnum milljón hluti í huganum. Hvernig gat það verið satt að Kalala vildi drepa hana?

\"\"

Restina af símtalinu, heyrði hún mann sinn og mannræningjana skipuleggja hvar þeir ættu síðan að fela líkið, þannig að málið kæmist ekki upp. Þetta var allt saman eins og í bíómynd.

Þegar símtalinu var lokið, snerist málið hins vegar alveg upp í andhverfu sína. Einn ræninginn sagði við hana:

,,Við ætlum ekkert að drepa þig. Við drepum ekki konur og börn.”

48 klukkustundir liðu samt, þar sem mennirnir héldu Rukondo fanginni. Síðan skildu þeir hana eftir úti á sveitaveg, þannig að Rukondo vissi í fyrstu ekkert hvar hún væri. Þeir sögðu henni að koma sér heim og létu hana meira að segja fá smá pening, sem í ofanálag var peningur frá Kalala! Það var vegna þess að hann hafði millifært á þá greiðslu, eftir að hann hélt að þeir væru búnir með verkið. Þeir höfðu fengið greidda 5 þúsund dali fyrir að drepa hana.

Rukondo tók peninginn, fékk aðstoð og flaug heim við fyrsta tækifæri. Hún var í sjokki en ákveðin í því að segja ekki neitt strax.

\"\"

 Í felum í fyrstu.

Þegar heim var komið, lét hún engan vita af sér. Kalala var þá önnum kafin við að undirbúa jarðaförina. Þar, þann 22.febrúar í fyrra, mætti Rukondo honum síðan fyrir framan kirkjugarðinn eins og áður sagði. Kalala var handtekinn í kjölfarið og í desember síðastliðinn, var hann dæmdur í 9 ára fangelsi.

En hvers vegna vildi Kalala drepa Rukondo? 

Jú, fyrir rétti sagðist hann hafa talið hana standa í framhjáhaldi. Það sagði hún ekki vera rétt. Við BBC sagði hún eftir að dómur féll:

,,Fortíðin er fortíðin. Hún er farin. Ég ætla að hefja nýtt líf núna.”

\"\"

Scribol

Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!