Mælt með sjálfsfróun af ýmsum (góðum) ástæðum

Sjálfsfróun er sjaldan í umræðunni, enda eflaust eitthvað sem fæstir myndu vilja viðurkenna eða ræða. Það er ekki þar með sagt að sjálfsfróun sé eitthvað neikvætt fyrirbæri, heldur þvert á móti: Hún gerir hverjum manni gott! Vefsíðan ScoopHoop bendir á þessar ástæður sérstaklega:

1. Dregur úr líkum á krabbameini í blöðruhálskirtli.

Samkvæmt rannsókn sem Harvard Medical School stóð fyrir, getur regluleg sjálfsfróun karlmanna, dregið úr líkum á krabbameini í blöðruhálskirtli.

2. Vægari túrverkir, minni hætta á sýkingu. 

Samkvæmt sömu rannsókn gerir það konum gott, að fróa sér á meðan þær eru á blæðingum. Fullnægingin örvar blóðrásina í kynfærum, sem aftur hefur þau áhrif að líkaminn losar sig frekar við sýktar bakteríur. Þá segir að sjálfsfróun dragi úr túrverkjum. 

3. Besta meðalið?
Enn önnur rannsókn gefur til kynna að regluleg sjálfsfróun dragi úr líkum á áunninni sykursýki. Loks er bent á að ekkert er sagt eins verkjastillandi og fullnæging (reyndar skammvinn ánægja, en samt...!)

\"\"

Við mælum með á Hringbraut:

Fylgstu með fjölbreyttri dagskrá Hringbrautar: Kíkt í skúrinn, Besti maturinn með Völu Matt, Kvikan með Birni Þorlákssyni, Ólafarnir, Mannamál með Sigmundi Erni, Ég bara spyr, Heilsuráð Lukku, Eywitness, Lífið með Lóu, Afsal, Okkar fólk með Helga Pétursyni, Lög og réttur, Herrahornið og fleira. Og mundu að Hringbraut er ókeypis!

\"\"

Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!