,,maðurinn minn er ekki barnapía. hann er foreldri”

Ég verð að fá að tjá mig svolítið. Létta á mér með hugleiðingar sem mér finnst skipta máli. Vitið þið hvað væri nefnilega mjög gott? Það væri, ef fólk hætti að tala um að ,,pabbinn ætlaði að passa.” Já, ef fólk myndi hætta að tala um að pabbar væru að ,,hjálpa til” við börnin. Svona eins og til merkis um að þeir séu duglegir með eitthvað. Hvaða jafnrétti er í því að tala svona?

Við erum öll að reyna að vinna að því að jafnrétti kynja sé til staðar alls staðar. En það þýðir þá líka að það eru ekki undantekningar með karlmenn á sumum vígstöðum. Einu sinni var staðan þannig að feður unnu úti og sköffuðu fyrir heimilið, mæðurnar voru heima með börnin. Nú er öldin önnur. Konur vinna til jafns við karlmenn úti og það er einmitt vegna þessa, sem við berjumst fyrir launajafnrétti.

En lítum okkur nær.

Ég og maðurinn minn erum hamingjusamlega gift. Vinnudagarnir okkar eru að öllu jafna frá um það bil klukkan 6 á morgnana, til klukkan 17.30 á daginn. Á meðan þessi tími er, skiptumst við á verkum og hvort okkar sér um ákveðin atriði. Um helgar er þetta meira afslappað og fjölskyldan nýtur bara samverunnar, án þess að prógramið sé endilega alltaf keyrt á fullu. Almennt er það samt þannig að ég sé um morgunmatinn, nestið í skólan, sjá til þess að krakkarnir bursti tennur og séu sæmilega til fara þegar þau fara í skólan. Okkar yngstu eru samt ekki byrjuð í skóla. Því má segja að vaktin hjá manninum mínum byrji um hádegi. Þá sér hann um þau yngstu og tekur síðan á móti skólakrökkunum okkar þegar þau koma heim. Hjálpar þeim við heimalærdóminn og passar uppá að þau tæmi nestisboxið sitt, þannig að það sé hreint og fínt fyrir daginn eftir. Það yngsta þarf að svæfa og klæða yfir daginn. Loks eldar hann kvöldmatinn.

Já, þetta kallast nefnilega að vera foreldri.

Samt er oft sagt við mig að ég sé svo rosalega heppin að hann skuli vera svona duglegur að hjálpa til með börnin. Við eigum nefnilega sex stykki, takk fyrir! En það að eignast sex börn kom ekki til af engu. Nei, þetta er ákvörðun sem við tókum saman. Enda erum við að ala upp börnin saman. Sem betur fer, styður hann mig í mínu starfi. Hann er því ánægður með hlutskiptin sín, ekkert síður en ég.

Þannig að þegar þið eruð að tala um hversu duglegur hann er, eða aðrir karlmenn í svipuðum aðstæðum, ekki hrósa þeim eins og þetta sé eitthvað óeðlilegt. Þeir eru ekki að passa. Þeir eru FORELDRAR og eru að sinna því hlutverki vel.

Munið:
Pabbar passa ekki. Þeir eru foreldrar!

Höfundur: Bloggarinn Rachel Toulson, sjá pistil hér.

Við mælum með á Hringbraut:

Mannamáli Sigmundar Ernis Rúnarssonar á Hringbraut kl.21.00 á miðvikudagskvöldum. Þar ræðir Sigmundur Ernir við þjóðþekkta Íslendinga, sem segja frá lífi sínu og starfi, skoðunum og afstöðu til manna og málefna. Sigmundur Ernir á að baki ríflega 30 ára farsælt starf í sjónvarpi og nær oft að sýna óvænta hlið á viðmælendum sínum. Fyrir vikið eru þættirnir á stundum mjög manneskjlegir, hlýir og einlægir. Mannamál með Sigmundi Erni er líka endursýnt á Hringbraut um helgar.

\"\"

 

Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!