Má bjóða þér kaffi af fáklæddum þjóni?

Ætli kaffi, sem ung kona eða ungur og stæltur karlmaður, afgreiðir nánast án fata, bragðist betur en annað? Maður myndi ætla ekki, en fáklæddir þjónar við afgreiðslu á kaffi eru nokkuð þekktir í Washingtonfylki í Bandaríkjunum.

\"\"

Enska orðið yfir þessa tegund þjóna, er ,,bikini baristas,” eða bikiní-þjónar, en þess skal þó getið að hér er ekki einungis verið að tala um konur í bikiní.

\"\"

Þetta er auðvitað umdeilt, enda veðurfar í Washington langt frá því að vera sólríkt allt árið og lítill klæðnaður þjóna því ekki skýrt af sól og hita. Svo umdeilt er þetta, að sumir stjórnmálamenn, velta því fyrir sér hvort um þetta þurfi að setja einhverjar reglur eða bann.

Hvað sem gagnrýni líður, virðist það vera svo að fáklæddir þjónar trekkja að og kaffisalan er því að ganga vel á þeim stöðum, þar sem bikiníþjónar afgreiða kaffið. Það skyldi þó ekki vera að kaffið bragðaðist eitthvað öðruvísi þar?

\"\"

Hd.Huffingtonpost

Við mælum með á Hringbraut:

Fylgstu með fjölbreyttri dagskrá Hringbrautar: Kíkt í skúrinn, Besti maturinn með Völu Matt, Kvikan með Birni Þorlákssyni, Ólafarnir, Mannamál með Sigmundi Erni, Ég bara spyr, Heilsuráð Lukku, Eywitness, Lóa og lífið, Afsal, Bókin sem breytti mér og fleira. Og mundu að Hringbraut er ókeypis! 

\"\"

Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!